Måløy Maritime Group (MMG) er fyrirtækjaklasi með ýmsum sérhæfðum framleiðendum innanborðs, þar á meðal skipahönnunarfyrirtækinu Skipskompetanse sem nýlega lauk samningum um ný skip sem verða smíðuð hjá Larsnes Mek Verksted, einni annasömustu skipasmíðastöð á svæðinu.

Útgerðin Naviera Orca frá Chile leitaði til Skipskompetance um hönnun á nýju 2.800 rúmmetra brunnskipi, 79 metra löngum bát sem verður með tækjabúnað af nýjustu gerð og engum útblæstri í lokuðum flutningi þar sem vatnið er hreinsað jafnóðum og fylgst grannt með ástandi þess.

„Nýja skipið verður í lykilhlutverki við að tryggja velferð fiskanna með lágmarks tilkostnaði,“ segir Ezequias Alliende, framkvæmdastjóri Naviera Orca.

„Skipið, tæknin, hagkvæmnin og stærðin eru nákvæmlega það sem við þurfum í þessari grein eins og er. Þetta er sú tækni sem við þurfum í Chile.“

Annað skip sem pantað hefur verið frá Skipskompetanse og Larsnes Mek Verksted er Nord-Fugløy sem verður smíðað fyrir Roger Nilsen, en hann gerir út frá Nord-Lenange í Norður-Noregi.

Þetta er nótabátur, hlaðinn nýjungum og hannaður með möguleika á því að flytja fiskinn sjófrystan eða unninn og frystan um borð, auk þess að hafa möguleika á því að flytja lifandi fisk í 400 rúmmetra geymaplássi.

Hönnunin á SK-3151 hefur verið aðlöguð að þörfum eigandans með Yanmar-aðalvél og 1000 kW/klst rafgeymi – þar sem fyrirkomulagið er hannað þannig að gert er ráð fyrir loftslagsáskorunum sem veiðiskip á norrænum slóðum geta staðið frammi fyrir í framtíðinni.

„Við höfum einu sinni áður tekið þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni, með góðum árangri og stefnum á að mæta öflug til leiks á sýningu ársins með 10 af 15 aðildarfélögum okkar á staðnum. Ísland er mikilvægur markaður fyrir mörg aðildarfyrirtækja okkar og þess vegna fullkomin staðsetning fyrir aðildarfélög okkar til að hitta bæði nýja og eldri viðskiptavini,“ segir Miriam Edler, framkvæmdastjóri MMG.

„Måløy Maritime Group vill efla hið frábæra fyrirtækjanet okkar í sjávarútvegi í kringum hafnarborgina Måløy, allt frá veiðarfæraframleiðendum og raftæknifyrirtækjum til skipasmíðastöðva, skipahönnuða og hafnarþjónustu. Við hlökkum virkilega til að taka þátt í þessari sýningu.“

Ef þú hefur áhuga á að sýna, styrkja, koma sem gestur eða flytja erindi á IceFish 2021, hringdu þá í +44 01329 825 335 eða sendu tölvupóst á info@icefish.is.

Sölumenn á Íslandi: Birgir Þór Jósafatsson S: +354 896 2277 birgir@icefish.is eða Bjarni Þór Jónsson GSM: +354 896 6363 bjarni@icefish.is

MMG.nord_fugloy_02b-1