NÁMSSTYRKIR

Stjórnendur Íslensku sjávarútvegssýningarinnar lögðu árið 2017 fram tvær milljónir króna til að stofna námssjóð fyrir nemendur sem stefna á nám í Fisktækniskóla Íslands í Grindavík og hafa nú lagt samtals sex milljónir króna í sjóðinn sem til þessa hefur styrkt 11 nemendur.

Í Fisktækniskóla Íslands er boðið upp á eins árs sérhæfðar námsbrautir í gæðastjórnun, fiskirækt og vinnslutækni þar sem nemendum býðst að útskrifast sem Marel-vinnslutæknar. Fisktækniskóli Íslands var stofnaður í Grindavík árið 2010 í þeim tilgangi að uppfylla kröfur sjávarútvegsfyrirtækja í veiðum, vinnslu og fiskeldi til starfsfólks með viðeigandi þjálfun. Í skólanum er boðið upp á grunnkennslu fyrir væntanlega sjómenn og veitt er margvísleg þjálfun í því skyni að efla hæfni væntanlegra sjómanna, auk þess sem boðið er upp á kennslu og þjálfun í fiskeldi og fiskvinnslu. Einnig er í boði netagerð “veiðitækni” í samstarfi við Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum í Reykjanesbæ. Í fyrstu var aðeins boðið upp á tveggja ára grunnnám i Fisktækni en síðan hefur verið byggt ofan á þau með sérhæfðari námsleiðum. IceFish-námssjóðnum er einkum ætlað að styrkja fólk til þannig framhaldsnáms.

Fylltu út þetta einfalda neðangreinda umsóknareyðublað til þess að eiga möguleika á námsstyrk.

Umsóknirnar verða lagðar fyrir ráðgjafahóp skipaðan fulltrúum frá Fisktækniskóla Íslands, Marel, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Landssambandi smábátaeigenda ásamt fulltrúa frá Íslensku sjávarútvegssýningunni. Umsóknir eru metnar með tilliti til þeirra þátta sem fram koma í meðfylgjandi leiðbeiningum.

Leiðbeiningar og upplýsingar vegna umsókna um námsstyrk

Lokafrestur til að skila umsóknum er 15. janúar 2024.

Icefish Bursaries All 14 April 2023

Icefish Bursaries 14 April 2023

Fyrirtæki og fyrri sýnendur sem ekki hafa þegar bókað sér sýningarbás fyrir Icefish 2024 ættu að hafa samband við Ómar Már Jónsson, annað hvort í netfang omar@icefish.is eða síma 893 8164 eða við Marianne Rasmussen-Coulling, í netfang eða síma: icefish@icefish.is | +44 1329 825335.