Þar á meðal er ríkuleg dagskrá IceFish Connect ásamt málstofum ráðstefnu um fullvinnslu sjávarfangs, Fish Waste for Profit, auk þess sem tækifæri gefast til að efna til funda og fylgjast með kynningum í rauntíma.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við erum með IceFish á netinu, og í framtíðinni munum við halda hana þannig samhliða viðburðum á staðnum. Þetta verður gert þannig frá og með IceFish 2022, “ segir Marianna Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri sýningarinnar á Íslandi.

„Mikil vinna hefur farið í að setja saman réttu efnisatriðin til þess að tryggja að IceFish Connect dragi að sér bæði rétta sýnendur og raunverulega áhugasama gesti.“

Allir gestir á IceFish Connect verða skráðir og gervigreind greinir hvern gest til að geta parað hann við framleiðendur og þjónustuveitendur sem hafa eitthvað að bjóða sem fellur að kröfum hans. Þannig er séð til þess að gestirnir geti nýtt sér eftir bestu getu þau tækifæri sem skapast á IceFish Connect.

„Þetta er ekki sami viðburðurinn og sýningin, sem gerir fólki kleift að hittast augliti til auglitis, en í grundvallaratriðum býr hann þó yfir sömu eðliskostum og aðrir viðburðir í viðskiptalífinu. Þótt ekki verði hægt að hittast af hendingu á göngunum, þá parar ráðstefnan saman fólk út frá þeim áhugaefnum sem skráð voru fram í upphafi. Þetta hjálpar fólki að tengjast þegar kröfurnar smella saman, ” segir hún.

„Þannig að þið getið hist, myndað sambönd og rætt það sem mestu máli skiptir fyrir ykkur og fyrirtækin ykkar, rétt eins og þið gætuð gert með því að hittast undir fjögur augu á sýningu í raunheimum.”

Gestir fá í hendurnar ítarlega dagskrá, þar á meðal ráðstefnur þar sem sérfræðingar hafa framsögu og pallborðsumræður verða á málstofum. Þetta er viðbót við aðaldagskrá IceFish Connect með viðburðum og kynningum.”

„Þetta er annað árið í röð sem takmarkanir vegna Covid koma í veg fyrir að fólk geti hist augliti til auglitis, þrátt fyrir að sjávarútvegs-, fiskeldis- og sjávarfangsgeirarnir séu afar úrræðagóðir og fljótir að laga sig að nýju vinnuumhverfi. IceFish Connect er okkar framlag til þess að auðvelda fólki í fiskveiðum, vinnslu og sjávarfangsfyrirtækjum að vera í tengslum hvert við annað og ráði yfir nýjustu þekkingu – og við munum snúa aftur árið 2022, bæði með aðra IceFish Connect og Íslensku sjávarútvegssýninguna sem átti að hafa orðið að veruleika fyrir löngu í raunheimum,” segir Marianne Rasmussen-Coulling.

Fylgist með okkur á TwitterFacebook og LinkedIn

Einnig er hægt að hafa samband í síma +44 1329 825335 eða sent tölvupóst á netfangið info@icefish.is