Tyrkneska skipasmíðastöðin gerir ráð fyrir því að fyrra skipið verði afhent snemma árs 2015 en það síðara um haustið sama ár. Nýju skipunum er ætlað að koma í stað tveggja 53 ára gamalla skipa, Víkings og Lundeyjar.

Skipin verða 80 metrar að lengd en mesta breidd verður 17 metrar. Bæði skipin verða búin öflugu tvöföldu 1.300.000kCal/klst. kælikerfi og tólf RSW tönkum með 2900 rúmmetra burðargetu. Aðalvélar skipanna verða 4600kW vélar.

Nýju skipin eru hönnuð með betri meðferð afla fyrir augum, til dæmis verður hægt að dæla upp úr trollpokanum í skut.