Breki er smíðaður fyrir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum og búið er að sjósetja hann en systurskipið

Páll Pálsson, sem smíðað er fyrir Gunnvöru á Ísafirði, verður brátt sett á flot. Gert er ráð fyrir því að skipin sigli síðar í sumar yfir hálfan hnöttinn áleiðis til heimahafna á Íslandi.

Báðir togararnir eru hannaðir með sérlega stórum skrúfum sem eru 4,7 m að þvermáli og vélum sem skila meira afli á hvern lítra eldsneytis en hefðbundnar skipsvélar en gert er ráð fyrir 30-40% eldsneytissparnaði.

„Útreikningar okkar sýna að fimm metra skrúfa er 30-40% hagkvæmari en þriggja metra skrúfa,“ sagði verkefnisstjórinn hjá Skipasýn, Rakel Sævarsdóttir. Hún bætti því við að ofurskrúfan væri góður kostur þar sem hafnir eru nógu djúpar fyrir djúpristari skip með skrúfur af þessari stærð.

Breki var sjósettur fyrr í mánuðinum og það styttist í að Páll Pálsson verði það líka en Magnús Ríkarðsson, skipstjóri Breka, sagði að frágangi skipanna væri þó hvergi nærri lokið.

„Það er spennandi að sjá þetta allt í fullum gangi. Skipið er stórkostlegt, alveg sérlega glæsilegur farkostur,” sagði hann eftir heimsókn sína nýlega í skipasmíðastöðina í Kína.

„Það tekur sinn tíma að setja upp allan búnað og við tökum ekki við skipinu fyrr en allt er frágengið eins og um var samið. Ég geri ráð fyrir að það taka svona tvo mánuði að ganga frá öllu sem ógert er.“