Við athöfnina fengu þau Jóhanna Sigurlaug Eiríksdóttir, sem er að sérhæfa sig í gæðastjórnun innan fiskiðnaðarins, og hins vegar Hallgrímur Jónsson, sem sérhæfir sig í Marel-vinnslutækni, styrki úr sjóðnum, 250 þúsund krónur hvort en fyrr á þessu ári var sömu upphæð veitt til þeirra.  Jóhanna og Hallgrímur stunda bæði nám við Fisktækniskóla Íslands og hafa nú þegar lokið tveggja ára grunnnámi í fisktækni. Styrkirnir nýtast þeim á lokaári námsins til að sérhæfa sig á fyrrgreindum sviðum.

„Í kjölfar Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2014 gerðu forsvarsmenn hennar sér grein fyrir mikilvægi þess að fjárfesta í framtíð sjávarútvegarins og hlúa að þeim framúrskarandi einstaklingum sem munu taka þátt í að móta greinina, auka gæðin og kynna til sögunnar nýjar hugmyndir,“ segir  Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri IceFish. „Við ákváðum í kjölfarið að leggja fram 2 milljónir króna til að styrkja efnilega námsmenn til að mennta sig frekar á sínu sviði og það er mér mikil ánægja að eins vel hefur tekist til og raun ber vitni. Ég er sannfærð um að bæði Jóhanna og Hallgrímur muni leggja sitt af mörkum til að gera hinn öfluga íslenska sjávarúteg enn betri.“

Lokadagur Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, IceFish 2017, er í dag föstudag. Aðsókn og viðtökur hafa farið fram úr björtustu vonum. Nýsköpun setji sterkan svip á sýninguna í ár, auk þess sem ráðstefna IceFish, Fiskúrgangur skilar hagnaði, var haldin í annað skipti og tók upp þráðinn frá þar sem var horfið 2014 í umfjöllun sinni um velgengnina sem frumkvöðlastarf Íslendinga í hagnýtingu fiskúrgangs hefur notið.

Í Fisktækniskóla Íslands er boðið upp á eins árs sérhæfðar námsbrautir í gæðastjórnun, fiskirækt og vinnslutækni þar sem nemendum býðst að útskrifast sem Marel-vinnslutæknar. Fisktækniskóli Íslands var stofnaður í Grindavík árið 2010 í þeim tilgangi að uppfylla kröfur sjávarútvegsfyrirtækja í veiðum vinnslu og fiskeldi til starfsfólks með viðeigandi þjálfun. Í fyrstu var aðeins boðið upp á tveggja àra grunnnám i Fiskitækni en síðan hefur verið byggt ofan á þau með sérhæfðari nàmsleiðum. IceFish-námssjóðnum er einkum ætlað að styrkja nema til slíks framhaldsnáms.

Dóm­nefnd var skipuð þeim Ólafi Jóni Arn­björns­syni, skóla­stjóra Fisk­tækni­skóla Íslands, Sig­ur­jóni Elías­syni,  fræðslu- og þró­un­ar­stjóra á alþjóðasviði Mar­el, Guðbergi Rún­ars­syni, verk­fræðingi og fram­kvæmda­stjóra Sam­taka fisk­vinnslu­stöðva, Erni Páls­syni, fram­kvæmda­stjóra Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, og  Bjarna Þór Jóns­syni, full­trúa Mercator Media/Í​slensku sjáv­ar­út­vegs­sýn­ing­ar­inn­ar á Íslandi.