Hugmyndin að baki því var sú að þróa eitt fiskitroll sem kæmi eins og mögulegt væri í stað tvöfalds netabúnaðar. Hönnuðir Fjarðanets unnu að verkinu í samstarfi við áhafnir togara Samherja og HB Granda.

„Við höfum náð mjög góðum árangri sem sést á því að trollið opnast betur og nær því yfir stærra svæði. Þær tölur sem við fáum frá togurunum staðfesta það sem við höfum þegar séð í tilraunatönkum,“ sagði framkvæmdastjóri Fjarðanets, Jón Einar Marteinsson, og hann bætti því við að þvernetstrollið færi nú í stöðugt fleiri togara og að það væri í boði bæði sem hefðbundið PE-net eða nýja Advant-netið frá Hampiðjunni.

Fjarðanet hefur einnig við önnum kafið við gerð vörpupoka en fyrirtækið nýtir sér QuickLines-línur frá Hampiðjunni til framleiðslu á T90-vörpupoka fyrir makríl sem Síldarvinnslan hefur notað við uppsjávarveiðar, auk vörpupoka fyrir botnfisk sem hannaðir eru á sama hátt.

„Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki hefur sagt að þeir veiði vel með búnaðinum frá okkur og að þeir hafi aldri haft poka sem jafn auðvelt er að dæla úr,“ sagði Jón Einar Marteinsson.

„Þetta er með áhugaverðustu verkefnum sem við höfum unnið að í samstarfi við Síldarvinnsluna og við kynnum þessa vörpupokatækni á Íslensku sjávarútvegssýningunni í sýningarbási D50 ásamt móðurfyrirtæki okkar Hampiðjunni.“