Brammer kostar skráningarsvæðið, vefsetrið og verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag til íslensks sjávarútvegs en þau verða afhent kvöldið sem sýningin er formlega opnuð.

Á sýningarsvæði Brammers verður að finna úrval af helstu söluvörum samsteypunnar, svo sem framleiðslulínur frá nokkrum helstu birgjum heims. Þar má t.d. nefna NSK, SKF, Gates, Renold, Timken, Norgren, Festo, Parker, 3M og SMC.

Brammer hefur einnig upp á bjóða fjölþætta virðisaukandi þjónustu, allt frá sjálfstæðri vöru- og notkunarráðgjöf til birgjahagræðingar, sölu á upprunalegum varahlutum, birgða á vegum seljanda (VMI) og jafnvel alhliða útvistunar á vörustöðlun með Brammer Insite™ en það er í raun útibú frá Brammer hjá viðkomandi viðskiptavini sem er ætlað það eina hlutverk að uppfylla þarfir einmitt þess viðskiptavinar hvað varðar birgðahald, afgreiðslutíma og tæknilega sérþekkingu.

Aflaðu þér nánari upplýsinga með því að fara á Brammer vefsíðuna á vefsetri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.