Á meðal þeirra sem heiðraðir voru með verðlaunum í kvöld eru þrír landsþekktir afburðamenn í íslenskum sjávarútvegi, hver á sínu sviði, þeir Bárður Hafsteinsson, stofnandi Skipatækni sem hannað hefur marga farsælustu og endingarbestu fiskiskipa íslenska flotans, Arthúr Bogason, fyrrum formaður Landssambands smábátaeiganda, og  Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri Vilhelms Þorsteinssonar EA, einn af reyndustu og farsælustu skipstjórum íslenska flotans.

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1999 til þess að heiðra afburði og vekja athygli á því besta á sviði fiskveiða, bæði á Íslandi og alþjóðlega, og virðing þeirra eykst stöðugt. Það er litið á það sem mikið hrós að hljóta Íslensku sjávarútvegsverðlaunin svo keppnin er hörð um þessa eftirsóttu nafnbót til kynningar á fyrirtækjum og framleiðslu. Íslensku sjávarútvegsverðlaunin hafa lengi verið hápunktur hverrar IceFish-sýningar.

Verðlaunin voru veitt nú í sjöunda skipti og eru þau í boði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og Kópvogsbæjar. Verðlaunin voru að þessu sinni styrkt af Landsbankanum, Vónin og Bureau Veritas. Dómnefnd undir forystu Guðjóns Einarssonar, fyrrum ritstjóra Fiskifrétta, og Quentin Bates, ritstjóra breska sjávarútvegstímaritsins World Fishing & Aquaculture, valdi verðlaunahafana.

Verðlaunahafar í heild:

Sýningarverðlaun

Besta nýjungin á sýningunni: Fiskevegn AS, Beitingarvélin VestTek er sögð vera „týndi hlekkurinn“ í línuveiðum, mitt á milli handfæraveiða og stórvirkra beitingarvéla. Vélin er sniðin að 5000-8000 önglum, tekur lítið pláss um borð í skipi og er einstaklega skilvirk.

Besti sýningarbásinn, að 50 fm2: Cemre Shipyard, Tyrkneska skipasmíðastöð sem hefur undanfarið smíðað fjóra togara fyrir íslenskar útgerðir, þrjú fyrir ÚA og Samherja og eitt fyrir FISK Seafood eitt.

Besti sýningarbásinn, yfir 50 fm2: Egersund Islands, Leiðandi fyrirtæki á sviði sölu, veiðarfæragerðar og viðgerða á flottrollum og nótum.

Besti lands-, svæðis- eða hópbásinn: Danish Fish Tech Group, Stærsta fyrirtæki á sínu sviði í Danmörku og þjónustar útgerðir, fiskvinnslustöðvar og fiskeldisstöðvar um heim allan.

Starfsgreinarverðlaun:

Framúrskarandi íslenskur skipstjóri: Guðmundur Þ. Jónsson er einn af reyndustu og farsælustu skipstjórum íslenska flotans. Hann hefur um árabil verið skipstjóri á fjölveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA sem hefur árum saman skilað mestu aflaverðmæti allra íslenskra fiskiskipa.

Framúrskarandi íslensk útgerð: Rammi hf. Rammi hf. er ein af öflugustu útgerðum landsins. Nýr frystitogari fyrirtækisins, Sólberg ÓF, sem afhentur var á þessu ári, markar tímamót í sögu frystitogaraútgerðar á Íslandi.

Framúrskarandi íslensk fiskvinnsla: Samherji, Samherji hf. er í fremstu röð í tækniþróun í fiskvinnslu á  Íslandi og hefur nú stígið enn eitt skrefið á þeirri braut með fjárfestingu í fullkomnu hátæknifrystihúsi á Dalvík.

Framúrskarandi framlag til íslensks sjávarútvegs: Arthur Bogason, Arthur Bogason var aðalhvatamaðurinn að stofnun Landssambands smábátaeigenda fyrir röskum þremur áratugum og formaður þess allt til ársins 2013. Með tilkomu landssambandsins varð ósamstæður hópur trillukarla að öflugri stétt smábátaeigenda sem sótt hefur réttindi sín af festu.

Alþjóðleg verðlaun

Atorka á sjó – stórfyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn: Thyborøn Trawldoor, Fyrirtækið hefur framleitt hina vel þekktu bláu toghlera í dönsku hafnarborginni Thyborøn í hálfa öld. Markverður árangur á þeirri vegferð er framlag fyrirtækisins til þróunar á botnvörpuveiðum með botnhlerum af gerðinni 14VF sem dregnir eru ofan við sjávarbotninn og síðar hönnun alhliða hlera af gerðinni Flipper og Bluestream.

Atorka á sjó - Lítið fyrirtæki með innan við 50 starfsmenn: Hönnunarfyrirtækið Skipasýn hefur verið í fremstu röð við að innleiða nýjungar í skipahönnun. Nýjustu dæmin um það eru togararnir Breki og Páll Pálsson sem búnir eru byltingarkenndri ofurskrúfu sem hefur í för með sér áður óþekktan orkusparnað.

Fiskvinnsla – verðmætasköpun - Stórt fyrirtæki með yfir 50 starfsmenn: Skaginn 3X er í fararbroddi í þróun margvíslegra kerfa sem snúa að fiskvinnslu og fiskmeðhöndlun á sjó og landi. Meðal nýjunga má nefna varðveislu fisks í lestum ferskfisktogara þar sem ekki er lengur þörf fyrir ís sem kælimiðil.

Fiskvinnsla – verðmætasköpun- Lítið fyrirtæki með innan við 50 starfsmenn: Curio hefur þróað margvísleg fiskvinnslutæki, þeirra á meðal er nýjung í flökunartækni sem leiðir til aukinnar nýtingar. Fyrirtækið er einnig með umsvif á útflutningsmörkuðum og hefur stofnað útibú í Bretlandi.

Snjall-verðlaun: Vónin, Færeyski veiðarfæraframleiðandinn Vónin hefur þróað búnað, the Flyer,  sem lyftir höfuðlínu trolls og getur því komið í stað hefðbundinna trollkúlna. Búnaðurinn hamlar þannig gegn plastmengun í sjó og er því umhverfisvænn.

Framlag til þróunar flotans (skipasmíðastöð/hönnuður/útgerð): Skipatækni, Íslenska skipahönnunarfyrirtækið Skipatækni á heiðurinn að byltingarkenndri hönnun fjögurra nýrra togara sem smíðaðir voru í Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi fyrir Samherja og FISK- Seafood.

Framúrskarandi framlag á heildina séð (valinn úr hópi ofangreindra verðlaunahafa): Skipahönnunarfyrirtækið Skipatækni og Bárður Hafsteinsson stofnandi þess hafa komið að hönnun margra farsælustu og endingarbestu fiskiskipa íslenska flotans. Þróun hans á nýrri lögun á stefni fiskiskipa á sér þrjátíu ára sögu. Verðlaunin eru veitt bæði fyrir frumkvöðlastarf hans í skipahönnun og langan árangursríkan feril á þessu sviði.