Þátttöku á IceFish-ráðstefnunni Fish Waste for Profit (Fiskúrgangur skilar hagnaði) fylgir ókeypis aðgangur að Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem yfir fimmtán þúsund gestir sækja

Á ráðstefnunni er heill dagur helgaður fagerindum frá íslenskum frumkvöðlum í endur- og fullvinnslu fiskúrgangs. Hvers vegna ekki að nýta þér lærdóminn til gagns og heimsækja Íslensku sjávarútvegssýninguna að ráðstefnunni lokinni?

Þátttaka á ráðstefnunni Fish Waste for Profit kostar aðeins 32.175 íslenskar kr. (eða €200/ £165). Innifalið er aðgangur að ráðstefnunni, allar upplýsingar og erindi á rafrænu formi, hádegismatur og hressingar meðan á ráðstefnunni stendur, ásamt ókeypis aðgangi að Íslensku sjávarútvegssýningunni sem stendur í þrjá daga.

Á meðal sýnenda á IceFish í ár eru vinnslustöðvar og einstaklingar sem tengjast endur- og fullvinnslu fiskúrgangs, sem veitir þér fullkomið tækifæri til að hitta jafnvel enn fleiri lykilmenn í greininni fyrir utan sjálfa ráðstefnuna.

Smelltu hér til að sjá lista yfir sýnendur

Hittu rétta fólkið á réttum stað á réttum tíma. Notaðu sýninguna til að efla fyrirtæki þitt með því að kynnast lykilfólki sem getur aðstoðað þig við að komast inn í þennan ört vaxandi iðnað.

Smelltu hér til að bóka þátttöku á ráðstefnunni.

Við kynnum @Sindri_Segir. Hefurðu spurningar? AskSindri! Ef þú vilt vita eitthvað um ráðstefnuna eða sýninguna skaltu spyrja sérfræðing okkar á staðnum um hvaðeina sem snertir IceFish og hann hefur samband við þig eins fljótt og nokkur er kostur, að því gefnu að hann hafi ekki brugðið sér á veiðar.

Til að fá frekari upplýsingar skaltu hafa samband við skipuleggjendur ráðstefnunnar í síma (0044) 1329 825335 eða sendu tölvupóst á netfangið info@icefish.is. Til að bóka skaltu heimsækja heimasíðu okkar www.icefishconference.com/e-commerce.