Opnað hefur verið fyrir móttöku erinda á The Icelandic Fisheries Conference sem haldin verður 14. september 2017 samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni.

Ráðstefnan Fish Waste for Profit fjallar um aðferðir til þess að hámarka hagnað við vinnslu sjávarafla með því að nýta eins mikið af fiskinum og hægt er og lágmarka það sem af gengur við vinnsluna.
Í framhaldi af árangursríkri ráðstefnu um þetta efni árið 2014 er nú stofnað til annarrar ráðstefnu undir sama merki þar sem kynntar verða niðurstöður rannsókna á reynslu þeirra sem náð hafa árangri í fiskiðnaðinum á þessu sviði og þar sem útskýrt verður hvers vegna vinnsla á fiskúrgangi er orðin að stórri atvinnugrein.
Á ráðstefnunni í ár verður fjallað um margvíslega nýtingu fiskúrgangs, svo sem þróun á vörum sem stór markaður er fyrir eins og áburður, skepnufóður og lífeldsneyti og síðan vörum sem krefjast mikillar vinnslu eins og vefnaður, lyf og snyrtivörur.
Hafi þitt fyrirtæki náð árangri í vinnslu á fiskúrgangi, þá máttu gjarnan láta frá þér heyra.
Fyrirtækjum, samtökum og einstaklingum er boðið að leggja fram erindi í eftirtöldum flokkum:
- Vinnsla á fiskúrgangi í stórum stíl
- áburður
- fiskiolíur
- dýrafóður
- Not fyrir fiskroð
- litun vefnaðar
- til lækninga
- Verðmætar vörur
- líftækni
- vörur til manneldis
- snyrtivörur
- Nýjar og framsæknar vinnsluaðferðir og tæki
- Fiskúrgangur: Stór atvinnugrein
- Fjárfestingarannsóknir, hvers vegna að fjárfesta, að hverju þarf að gæta
- Fjárhagslegur ávinningur af því að nýta allan fiskinn – frásagnir af fyrirtækjum sem hafa náð að hámarka hagnað sinn.
- Að skapa verðmæti úr skeljum krabba- og skeldýra
Ágrip erinda skulu vera að hámarki 200 orð. Forgang hafa þeir sem búa yfir reynslusögum af nýtingu fiskúrgangs og rannsóknum á þeim. Vinsamlegast sendið ágripin, ásamt æviatriðum ræðumanns, andlitsmynd og lógói, til igwynn@mercatormedia.com í síðasta lagi 31. maí n.k.
Þeir sem óska frekari upplýsinga um ráðstefnuna eru hvattir til þess að hafa samband við starfsmenn hennar í síma +44 1329 825335 eða skoða vefsíðuna www.icefishconference.com.