Ertu ekki með á hreinu hvað ber hæst á ráðstefnu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, Fish Waste for Profit? Ekkert mál, hér er fyrri hluti opinberu leiðsagnarinnar um ráðstefnuna í ár. Við birtum síðari hlutann í næstu viku. Fylgstu með.

Fyrri hluti Fish Waste for Profit-ráðstefunnar (Fiskúrgangur skilar hagnaði) einbeitir sér að lægri stigum virðispýramítans og hvernig má ná fram sem mestum virðisauka úr hráefni sem þarfnast lágmarks vinnslu.
Fundarstjóri: Dr. Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans.
Þór mun ræða um sköpun aukinna verðmæta úr ónýttum hliðarafurðum og veita yfirsýn yfir iðnaðinn á Íslandi. Markmið Íslenska sjávarklasans er að búa til verðmæti með því að tengja saman frumkvöðla, fyrirtæki og þekkingu innan haftengdrar starfsemi. Sjávarklasinn veitir fyrirtækjum á því sviði margskonar þjónustu í þvi skyni.
Gestir boðnir velkomnir með ávarpi: Tómar Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Codland.
Tómas mun fara í saumana á starfsemi Codlands frá núverandi stöðu til framtíðarsýnar fyrirtækisins. Codland er ungt frumkvöðlafyrirtæki sem hefur að markmiði að nýta þorskinn til fulls. Gætir þú gert það sama í þínu fiskvinnslufyrirtæki?
Aðalræðumaður: Hilmar Kjartansson, yfirmaður klínískra rannsókna og þróunar hjá Kerecis.
Hilmar stýrir rannsóknum og þróun hjá Kerecis og mun fjalla um hugmyndirnar að baki því að nýta fiskroð sem lífstoðefni. Hann mun einnig tæpa á vegferð Kerecis til að vaxa hratt sem ábátasamt fyrirtæki.
Málstofa 1: Snorri Hreggviðsson, framkvæmdastjóri, stofnandi og eigandi Margildis.
Snorri mun ræða um einkaleyfisvarða aðferð fyrirtækisins (hraðkaldhreinsun) við að kaldhreinsa lýsi úr uppsjávartegundum, með því að fjarlægja einómettaðar fitursýrur, svokallað sterín. Með þessari aðferð Margildis er hægt að framleiða gæðalýsi til manneldis.
Málstofa 1: Davíð Tómas Davíðsson, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Codland
Davíð mun dýpka umfjöllun Tómasar um Codland með því að ræða um hvernig unnt er með fjárfestingum í sjálfbærum lausnum, samtvinnað réttri meðhöndlun og vinnslu, að skapa verðmæti úr vannýttum aukaafurðum. Hann mun tiltaka helstu áskoranir í þessu sambandi og hvaða tækifæri eru í boði.
Smelltu hér til að sjá dagskrána í heild.
Til að fá frekari upplýsingar skaltu hafa samband við skipuleggjendur ráðstefnunnar í síma (0044) 1329 825335 eða senda tölvupóst á netfangið info@icefish.is. Til að bóka þátttöku geturðu einnig heimsótt vefsíðu okkar www.icefishconference.com/e-commerce.