Sjávarútvegsráðstefnan Fiskúrgangur skilar hagnaði (Fish Waste for Profit 2017) býður upp á erindi frá Feel Iceland, einstöku snyrtivörufyrirtæki sem framleiðir snyrtivörur auðugar af kollageni unnu úr fiskúrgangi.

Lunginn af snyrtivörum á markaði í dag er sagður búa yfir leyndardómum þess að láta okkur líða unglegri út og auka vellíðan. Það kemur vart á óvart að viðskiptatímaritið Forbes áætlar að fegurðariðnaðurinn velti um 445 milljörðum dollara, sem gerir hann að „gullnámu” fyrir konur sem rísa til metorða á eigin verðleikum.

Núorðið er kynjamunur í sjávarútvegi viðurkennd staðreynd á alþjóðavísu og stjórnvöld vítt og breitt um heiminn eru að koma á fót jafnréttisáætlunum til að hvetja konur til að hasla sér völl í greininni og brúa kynjabilið.

Hrönn Margrét Magnúsdóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Feel Iceland, kveðst hafa að leiðarljósi að „skapa meiri verðmæti úr holla og dýrmæta fiskinum okkar, eitthvað sem aukið getur vellíðan fólks.” Það kom Hrönn í opna skjöldu að uppgötva hversu miklu af óunnu fiskmeti var fleygt og segir að eftir að hafa rannsakað þessi mál ofan í kjölinn hafi hún gert sér ljóst að „við vorum að kasta gulli á glæ.”

Rannsóknir Hrannar ásamt skilningi samstarfskvenna hennar á hversu mjög konur eru drifkraftar snyrtivöruiðnaðarins leiddu til þróunar og framleiðslu á vörum sem innihalda kollagen úr sjávarfangi og höfða til einstaklinga sem sækjast eftir heildarlausn með innri sem ytri verkan til að ná fram hámarksárangri.

Hrönn tekur þátt í seinni hluta ráðstefnunnar, Sérhæfð vara (Niche Products), ásamt fulltrúa Atlantic Leather. Smelltu hérna til að sjá dagskránna í heild sinni.

Til að heyra meira frá Hrönn skaltu skrá þig til þátttöku í ráðstefnunni Fish Waste for Profit núna! Heimsóttu okkur á www.icefishconference.com eða hringdu í síma (0044) 1329 825335 til að fá frekari upplýsingar.