Talið er að 43% af heildarafla fisks og skelfisks í Bretlandi nýtist í afurðir til manneldis á mismunandi stigum fiskvinnslu.

Það þýðir að verulegt magn af þeim fiskúrgangi sem annars er fleygt má nýta á arðbæran hátt. Því vaknar sú spurning hvers vegna fleiri fyrirtæki snúi sér ekki að þessum þætti.

Algengur fiskúrgangur sem til fellur í fiskvinnslu er hausar, roð, bein, uggar, tálkn og innyfli. Allt þetta er sérstaklega próteinríkt og því kjörið til noktunar í áburð, skepnufóður, lífeldsneyti, vörur til manneldis og jafnvel í snyrtivörur.

Tidal Vision í Juneau í Alaska litar laxaroð til notkunar sem leður í seðlaveski og belti. Fyrirtækið hefur einnig unnið kítósan úr rækjuskel en það efni er þekkt fyrir bakteríudrepandi eiginleika sína.

Kerecis er annað fyrirtæki sem þátt tekur í þeirri byltingu sem orðið hefur í vinnslu á fiskúrgangi. Fyrirtækið hefur fundið upp aðferð til þess að græða sár með því að nota fiskroð. Fiskroð kemst næst því að koma í staðinn fyrir mannshúð og hátt prótein omega-3 innihald roðsins stuðlar að skjótari bata.

Feel Iceland hefur haslað sér völl í snyrtivöruiðnaðinum með margvíslegum húðvörum sem eru ríkar af kollageni sem unnið er úr fiskpróteini úr fiskúrgangi. Stofnandi fyrirtækisins fékk hugmyndina eftir að hafa komist að raun um hversu stórum hluta veidds afla er fleygt og reyndi að finna leið til þess að endurnýta þetta hráefni á arðvænlegan hátt.

Vinnslu á aukaafurðum má útskýra með verðmætapíramítanum þar sem sjá má mismunandi framleiðslumagn og virði þessara vara.

Til þess að fræðast nánar um fyrirtækin sem eru í fararbroddi í nýtingu fiskúrgangs er hægt að bóka sig á ráðstefnuna Fish Waste for Profit þar sem fulltrúar þessara fyrirtækja mæta.

Frekari upplýsingar má fá í síma +44 1329 825335 eða senda tölvupóst á jgwynn@mercatormedia.com.