Samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni 2017 í september næstkomandi verður haldin ráðstefnan Icelandic Fisheries Conference. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin en hún var einnig haldin í tengslum við síðustu sjávarútvegssýningu árið 2014.

Yfirskrift ráðstefnunnar er nú sem fyrr Fish Waste for Profit sem útleggja má sem fiskúrgangur skilar hagnaði. Á ráðstefnunni öðlast þátttakendur þekkingu á því hvernig hægt er að hámarka arðsemi af vinnslu á fiskúrgangi með því að breyta honum í dýrmætar afurðir í lyfja- og snyrtivöruiðnaði.
Lítil þekking var á vinnslu á fiskúrgangi fyrir 20 árum en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og nú er þessi vinnsla orðin að ábatasamri viðbót við hefðbundna fiskvinnslu og þjónar iðnaði á sviði snyrtivöru, lyfja og landbúnaðar.
Ráðstefnan í ár nýtur stuðnings Íslenska sjávarklasans. Íslensku sjávarklasinn skapar verðmæti með því að leiða saman frumkvöðla, fyrirtæki og þekkingariðnað á sviði sjávarútvegs. Sjávarklasinn leggur sérstaka áherslu á vinnslu á vörum úr fiskúrgangi og er með nokkur fyrirtæki á því sviði innan sinna vébanda.
Óskað er eftir erindum á ráðstefnuna í ár og er hægt að skoða þau á vefnum. Við viljum gjarnan heyra frá fyrirtækjum sem hafa náð árangri í vinnslu á fiskúrgangi, hafa yfir að ráða nýstárlegri tækni eða hafa fjárfest í slíkri vinnslu.
Með því að gerast ræðumaður, þátttakandi eða stuðningsaðili ráðstefnunnar gefst viðkomandi ekki aðeins kostur á að mynda tengslanet og hlusta á upplýsandi erindi heimsþekktra forustumanna í fiskvinnslu, heldur fær hann/hún einnig aðgang að 12. Íslensku sjávarútvegssýningunni sem laðar að sér 15.000 gesti.
Frekari upplýsingar má fá í síma +44 1329 825335 eða senda tölvupóst á jgwynn@mercatormedia.com.