Það er búið að opna fyrir bókanir á Icelandic Fisheries Conference. Þátttakendur geta sparað 15% með því að bóka núna!

Ráðstefnan „Fiskúrgangur skilar hagnaði“ (Fish Waste for Profit) er nú haldin í annað sinn. Markmið hennar er miðla þekkingu íslenskra frumkvöðla á sviði endurnýtingar fiskúrgangs til sérfræðinga frá alþjóðlegum útgerðarfyrirtækjum og fiskvinnslustöðvum.

Þátttakendur fá aðgang að ráðstefnunni, öll ráðstefnugögn í stafrænu formi, hádegismat og hressingu meðan á ráðstefnunni stendur og ókeypis aðgang að Íslensku sjávarútvegssýningunni, IceFish17, alla þá þrjá daga sem hún stendur. Þátttakendur fá einnig boðsmiða á afhendingu Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna þann 13. september nk.

Á sérstökum Tengslastundum (e. Dedicated networking time) meðan á hádegis- og kaffihléum stendur gefst þér tækifæri til að hitta aðra þátttakendur fyrir utan fyrirlestra og ræða það sem hæst ber á málstofunum í afslöppuðu umhverfi. Icelandic Fisheries Conference er í forsvari fyrir sérvalinn hóp um eitt hundrað einstaklinga á sviði nýtingar fiskúrgangs til verðmætasköpunar, sem býður upp á kjöraðstæður til að styrkja og efla tengslanet þitt í návígi.

Icelandic Fisheries Conference er fullkominn vettvangur til að hitta mikilvæga hagaðila (stakeholders) í greininni, fjárfesta og aðra fagmenn sem vilja hasla sér völl á sviði endurnýtingar fiskúrgangs.

Búið er að opna fyrir bókanir og í takmarkaðan tíma geturðu fengið 15% afslátt á þátttökukostnaði þegar þú bókar á Netinu á heimasíðu okkar, með því að nota bókunareyðublöð eða með því að panta símleiðis. Þetta þýðir að þátttaka á ráðstefnunni Fish Waste for Profit mun aðeins kosta 27.400 krónur.

Bókaðu núna til að hagnýta þér þetta einstaka, tímabundna tilboð!

Ef þig vantar frekari upplýsingar um ráðstefnuna Fish Waste for Profit skaltu ekki hika við að hafa samband við skipulagsteymið í síma (0044) 1329 825335 eða í netfangið info@icefish.is.