Núna er aðeins mánuður þangað til ráðstefnan „Fiskúrgangur skilar hagnaði” (Fish Waste for Profit 2017) hefst. Ráðstefnan fer fram 14. september, meðan á Íslensku sjávarútvegssýningunni stendur í Smáranum í Kópavogi.

Búið er að ganga frá dagskránni og hún er svo sannarlega troðfull af fyrirlestrum með raunverulegum dæmum og reynslusögum frá sérfræðingum í fullvinnslu fiskúrgangs, svo sem fulltrúum fyrirtækja sem sérhæfa sig í snyrtivöruframleiðslu, fæðubótaefnum, lýsi, leðurgerð og fjölmörgu fleira.
Ráðstefnan í ár nýtur fulltingis Íslenska sjávarklasans og Sjávarklasans í New England í Bandaríkjunum, sem eiga það m.a. sameiginlegt með skipuleggjendum ráðstefnunnar að vilja að fulltrúar úr sjávarútvegi á alþjóðavísu fái tækifæri til að uppgötva ótal margar nýjar leiðir til að fullnýta aflann og auka hagnaðinn af vinnslunni.
Hægt er að bóka á Netinu á vefslóðinni www.icefishconference.com
Innifalið í þátttöku er meðal annars:
* Aðgangur að ráðstefnunni.
* Allar upplýsingar og texti í rafrænu formi.
* Hádegisverður og hressingar meðan á ráðstefnunni stendur.
* Ókeypis aðgangur að Íslensku sjávarútvegssýningunin, sem gildir í þrjá daga.
* Boðskort á afhendingu Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna 13. september nk.
Á sérstökum Tengslastundum (e. Dedicated networking time) gefst þátttakendum kostur á að framlengja samræðurnar að loknu hverju erindi og læra af sérfræðingunum sem rutt hafa brautina í fullvinnslu fiskúrgangs á Íslandi.
Frekari upplýsingar má finna á vefslóðinni www.icefishconference.com eða í síma (0044) 1329 825335, þar sem úrræðagóðir og hjálplegir meðlimir ráðstefnuteymisins veita alla aðstoð.