Með því að skrá sig fyrirfram geta gestir komist fram fyrir í biðröðunum og sparað yfir 20%. Farið á vefsíðuna til að skrá ykkur og vera fremst í biðröðinni þegar Íslenska sjávarútvegssýningin opnast.

https://registration.gesevent.com/survey/1nt6ttyktqz57

Eftir að takmarkanir vegna heimsfaraldurs hafa verið í gildi í meira en ár, þá gefur sýningin í september bæði sýnendum og gestum langþráð tækifæri til þess að hittast augliti til auglitis. Góður gangur hefur verið í bæði evrópskum og alþjóðlegum bólusetningaráætlunum og í bígerð eru Covid-vegabréf sem geta auðveldað ferðalög eftir sumarið. Margir nýir sýnendur taka þátt í ár, skoða má fjöldann allan af nýjum vörum og tækni, haldnar verða ráðstefnur, veittar viðurkenningar og efnt til stefnumóts fyrirtækja, þannig að sýningin í ár verður ómissandi viðburður fyrir alla aðila í virðiskeðju sjávarafurða.

„Við erum virkilega spennt að geta tilkynnt að skráningin á Íslensku sjávarútvegssýninguna, þá þrettándu í röðinni, hefur nú verið opnuð,“ segir Marianne Rasmussen-Coulling, viðburðastjóri hjá Mercator Media. „Við erum stolt af því að vera með sýninguna sem gefur fólki úr greininni kost á að hittast á ný eftir öll þau áhrif sem heimsfaraldurinn hefur haft. Á þessari sýningu verða lykilfyrirtæki bæði frá íslenskum og erlendum sjávarútvegi með viðveru í þrjá ómetanlega daga.“

„Enterprise Europe Network Iceland – Rannís verður aftur með stefnumótaviðburð á sýningunni þetta árið. Hann vakti mikla lukku síðast og hefur nú verið lengdur um einn dag vegna mikillar eftirspurnar. Hann verður dagana 15. og 16. september, gestir geta gefið upp áhuga sinn á að taka þátt þegar skráningareyðublaðið er fyllt út á netinu.

„Á þessu ári höldum við fjórðu ráðstefnuna um arðbærni hliðarafurða, Fish Waste for Profit, þar sem áherslan er á fullnýtingu í fiskvinnslu. Hún verður haldin 16. og 17. september og þátttakendur geta komist að því að þeir gætu verið að henda allt að 43% af mögulegum hagnaði. Gleymið svo ekki hinum eftirsóttu Íslensku sjávarútvegsverðlaunum sem veitt eru fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa sett mark sitt á greinina, og eru veitt að kvöldi fyrsta sýningardagsins.“

Skráðu þig núna á netinu til að tryggja þér aðgang að sýningunni. Við hlökkum til þess að sjá þig þar.

https://registration.gesevent.com/survey/1nt6ttyktqz57

2014 1ab