Samey Robotics hefur í yfir 32 ár verið leiðandi í sjálfvirknivæðingu íslensks iðnaðar og brautryðjandi í notkun þjarka í sjálfvirkni. Samey Robotics hefur með þessum lausnum aðstoðað fjölda fyrirtækja til lands og sjávar á farsælan og árangursríkan hátt við að auka framleiðni og rekstrarhagkvæmni. Á sjötta hundrað verksmiðjur og vinnslur í 25 löndum starfa í dag með kerfum frá Samey Robotics. Árangur undanfarinna ára hefur verið sérlega marktækur og hefur Samey Robotics afhent mörg stór kerfi fyrir laxeldi á Íslandi, Færeyjum og í Noregi. Einnig eru lausnir frá Samey Robotics víða í fiskvinnslum landsins og þar má t.d. nefna í hátækni fiskvinnsluhúsi Samherja á Dalvík og Brim í Reykjavík.

Við bjóðum heildarlausnir, sniðnar að þínum þörfum, allt frá hönnun til gangsetningar. Við byggjum skilvirkar, notendavænar lausnir og veitum úrvals þjónustu.

Einnig bjóðum við íhluti í sjálfvirknikerfi og til iðnrekstrar frá heimsþekktum framleiðendum, hraðabreyta, mælinema, iðntölvur, skjái og þjarka svo eitthvað sé nefnt. Gæðakerfi Sameyjar Robotics er samkvæmt ISO 9001:2015 staðli og vottað af BSI.

 

 

 

 

Heimilisfang:
Lyngas 13
210 Gardabaer
Iceland

Vefsíða:
www.samey.is