Ráðstefnan The Icelandic Fisheries Conference, sem ber yfirskriftina Fish Waste for Profit eða Hagnaður úr fiskúrgangi, nálgast nú óðfluga. Kynningarbæklingur með styrktaraðilum hennar er nýkominn út.

Ráðstefnan fer fram í Kópavogi 14. september næst komandi og er búist við þátttakendum frá yfir 80 þjóðlöndum. Fish Waste for Profit-ráðstefnan er haldin samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem laðar að sér yfir 15 þúsund gesti. Ráðstefnan býður upp á meiri nálægð við aðra þátttakendur og er kærkominn vettvangur fyrir tengslamyndun og til að uppgötva hvaða nýjungar eiga sér stað í þessum geira.
Kynningarbæklinginn með styrktaraðilum má nálgast HÉR.
Ennþá er mögulegt að gerast styrktarðili sérstakra Tengslastunda (e. The dedicated networking time). Á þeim fer fram upplýsinga- og tengslamyndun meðan á kaffi- og matartímum ráðstefnunnar stendur, sem gefur styrktaraðilum kost á að kynna vörur sínar og þjónustu og öðlast fyrirtaks tækifæri til að blanda geði við þátttakendur.
Öllum þátttakendum á ráðstefnunni býðst ókeypis aðgangur á Íslensku sjávarútvegssýninguna, IceFish17, þannig að tengslamyndunin getur haldið áfram eftir sjálfa ráðstefnuna.
Ef þú ert opinber styrktaraðili á ráðstefnunni geturðu hagnýtt þér sérsniðna vef-pakka, kynningar í rafrænum fréttum sem sendar eru til yfir 10 þúsund viðtakenda, og sérstaka kynningu áður en ráðstefnan hefst í systurtímariti ráðstefnunnar, World Fishing and Aquaculture.
Ráðstefnan í ár mun fjalla um alla virðiskeðjuna í nýtingu fiskúrgangs frá upphafi til enda. Ef fyrirtækið þitt starfar í þessum geira og vill stækka og styrkja tengslanetið eða kynnast nýjum viðskiptavinum frá fjarlægum löndum er ráðstefnan rétti vettvangurinn.
Kynntu fyrirtækið þitt fyrir rétta hópnum, á réttum stað, á réttum tíma. Það eru ekki margir pakkar í boði fyrir styrktaraðila og þeir seljast hratt, svo það er eins gott að hafa samband hið fyrsta. Hringdu í skipuleggjendur ráðstefnunnar í síma (0044) 1329 825335 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið jgwynn@mercatormedia.com .