Sjávarklasinn í New England í Bandaríkjunum, The New England Ocean Cluster, hefur staðfest stuðning sinn við IceFish-ráðstefnuna „Fiskúrgangur skilar hagnaði”, sem er nú haldin í annað skipti, að þessu sinni í september 2017.

Sjávarklasinn í New England (NEOC) hefur það markmið að skapa samþætt þekkingarsamfélag á sviði sjávarútvegs, til að styðja við sjálfbærni og ábyrgan vöxt, þjálfa og laða að hæfileikafólk með fagþekkingu, og hvetja til nýsköpunar hjá fyrirtækjum.
Markmið sjávarklasans er að koma á framfæri kröftugum kerfum og tengslum á meðal atvinnugreina á sviði sjávarútvegs og frumkvöðlastarfs til að hámarka samþættingu hugmynda á vettvangi sjálfbærni og umhverfisverndar, og knýja á um samvinnu framsækins fagfólks.
NEOC hefur höfuðstöðvar í Maine-ríki og dafnar vel í nálægð við hina öflugu hefð atvinnuveiða sem ríkið hefur að geyma, ásamt blómstrandi lífvísindaiðnaði, en í rikinu er að finna ríflega 220 fyrirtæki og stofnanir í lífefna- og lyfjageiranum. NEOC býður frumkvöðlum aðstöðu til að tengjast fyrirtækjum á hinum ýmsu sviðum til að þróa áfram hugmyndir sínar og hagnast í sameiningu á vannýttum tækifærum – og skapa þannig verðmæti fyrir greinina í heild sinni.
Forsvarsmenn IceFish-ráðstefnunnar „Fiskúrgangur skilar hagnaði” fagna stuðningi NEOC og horfa með tilhlökkun til þeirra spennandi möguleika sem samstarfið getur leitt af sér í framtíðinni.
Ef þú vilt taka þátt í ráðstefnunni skaltu bóka pláss núna á vefslóðinni www.icefishconference.com eða hringja í síma (0044) 1329 825335.