Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir að þótt íslenskur sjávarútvegur sé í fararbroddi á heimsvísu í nýsköpun, verði greinin og velunnarar hennar að herða róðurinn til muna til að halda áfram að blómstra. Þetta kom fram í ræðu ráðherra við afhendingu Verðlauna Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2022, en lokadagur hennar er í dag. 10. júní.

„Verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar ættu að hvetja fyrirtæki og frumkvöðla til að leita eftir nýjum hugmyndum og reyna nýjar hugmyndir,” sagði Svandís m.a. í ræðu sinni.

Svandís Svavarsdóttir

Svandís Svavarsdóttir

Hlúa verður að nýsköpun

Svandís sagði að nýsköpun í sjávarútvegi hafi verið styrkt með framlögum úr hinum ýmsu sjóðum í gegnum tíðina, þar á meðal auknum fjárveitingum ríkisins til málaflokksins hin seinustu ár. Hlúa verði að nýsköpun með því að skapa heppilegt umhverfi, þar sem frumkvöðlar geti reynt nýjar hugmyndir og fyrirtæki hafi kjark og þor til að prófa þær og hrinda þeim í framkvæmd.

„Við sem stýrum pólitískri stefnumótun á þessu sviði verðum sömuleiðis að leggja fram þá framtíðarsýn og löggjöf sem færir okkur til móts við aukna nýsköpun og þróunarstarf,” sagði Svandís ennfremur.

Verðlaunin endurspegla lifandi atvinnugrein

Hún fór lofsamlegum orðum um þá sem hlutu Verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2022 og bætti við: „Verðlaunahafarnir sýna vel hversu líflegur og hugmyndaríkur sjávarútvegsiðnaðurinn getur verið, snöggur að bregðast við nýjum áskorunum og stöðugt að keppast við að auka verðmætasköpun í greininni.

Ráðherrann sagði að kóvíd-faraldurinn hefði undirstrikað rækilega mikilvægi sjávarútvegarins fyrir íslenska hagkerfið.

„Á sama tíma og margar burðarstoðir hagkerfisins urðu fyrir áföllum hélt sjávarútvegurinn sveigjanleika sínum og færni til að bregðast við nýjum og krefjandi kringumstæðum.

„Samfara því markmiði að ná hundrað prósent nýtingu aflans hafa orðið til nýjar uppsprettur verðmæta, bæði í vinnslu og tækni á borð við vatnshreinsun og ofurkælingu. Tækninýjungar í greininni gera fyrirtækjum kleift að flytja út betri gæðavöru á erlenda markaði.”

Ráðherra minnti á að stöðugt sé verið að finna nýjar og frumlegar leiðir til að nýta sjávarfang og nefndi í því sambandi vinnslu fiskroðs í þágu læknavísinda. Það sé gott dæmi um hvernig nýjar lausnir skapa ný verðmæti.

Stefnt að sjálfbærri stýringu

„Lykillinn að velgengni er samt sem áður að stefna að sjálfbærri stýringu þessarar lífsnauðsynlegu auðlindar. Við höldum í dag upp á Alþjóðadag hafsins, sem minnir okkur á við verðum að finna nýja leið til að nálgast umhverfi hafsins. Af þeim sökum verða allar okkar stóru áætlanir varðandi auðlindir sjávar að byggja á þeirri staðreynd að við megum engan tíma missa,” sagði Svandís.