Drifbúnaður úr ryðfríustáli, lausnir fyrir matvælaiðnað.

Hreinlæti og sjálfbærni skipta miklu máli í öllum matvælaiðnaði, en þar hefur Dertec réttu lausnirnar.

Bjóðum ryðfría gíra, ryðfría rafmótora og ryðfríar legur.

Með stolti býður Dertec upp á eitt mesta úrval af driflausnum úr ryðfríu stáli til notkunnar í matvælaiðnaði. Þar á meðal eru vörur úr rafpóleruðu 316 stáli og öxlar úr Duplex 2205 ásamt vottuðum IP69K vörum.

Samhæfðir og ósamhæfðir rafmótorar sem nota má með stöðluðum flansi eða sérfestingum og setja saman við mismunandi gerðir af breiðri línu af ryðfríum Dertec gírum.

Ryðfríir rafmótorar frá Dertec eru afgreiddir loftkældir eða lokaðir (TENV eða TEFC) allt eftir þörfum, einnig eru til vatnskældir mótorar sem lausn við sérstakar aðstæður.

Flestar gerðir mótora eru fáanlegar með innbyggðri bremsu eða encoder.

Samhæfðir sísegulsmótorar bjóða upp á áhugaverðar lausnir í hraðastýringu með því að nota encoder servostýringu.

Framleiddar eru átta mismunandi gerðir af ryðfríum gírum, snúningsvægið er frá 20 til 2700Nm og öxulþvermál 14 til 60mm.

Gírarnir eru til sem eins þrepa, tveggja þrepa og þriggja þrepa niðurgírun með skátenntum tannhjólum, ýmist beint úrtak eða í vinkil, pinion vinkilgírar og snekkjugírar.

Það er engin tilviljun að slagorð Dertec sé “ Dertec, hannað til frammistöðu”.

 
 

Heimilisfang:
Einsteinpark 1
TX Sassenheim
NL 2171
The Netherlands

Vefsíða:
https://www.dertec.com/

Samfélagsmiðlar:
LinkedIn
YouTube
Facebook