Reykavík, 19. janúar 2024

Í dag var tilkynnt hverjir hljóta námsstyrki fyrir árið 2024 úr menntasjóði Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, en IceFish 2024 sýningin verður haldin í Smáranum í september nk. Námsstyrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Íslenska sjávarklasanum fyrr í dag.

Í kjölfarið á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2014 gerðu forsvarsmenn sýningarinnar sér grein fyrir nauðsyn þess að fjárfesta í framtíð sjávarútvegarins á Íslandi og settu á stofn menntasjóð til að veita námsstyrki til efnilegra nema innan geirans. Fyrsti námsstyrkurinn var veittur árið 2017 og nú hafa alls fjórtán styrkir verið veittir.

Handhafar námsstyrkjanna 2024 eru þrír talsins, úr stórum hópi msækjenda, og stunda allir nám við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Hver þeirra hlýtur 300 þúsund króna til hvatningar til áframhaldandi náms.

Styrkina úr IceFIsh-menntasjóðnum hljóta að þessu sinni þær Klaudia Magdalena Lenkiewicz, sem lokið hefur námi í fisktækni og stundar nú framhaldsnám í gæðastjórnun, Beata Mroz, sem lokið hefur námi í fisktækni og stundar nú framhaldsnám í gæðastjórnun, og Þórdís Ýr Snjólaugardóttir, sem lokið hefur námi í gæðastjórnun og ætlar nú að bæta við sig fiskeldistækni.

Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri IceFish 2024, segir:

”Það er með mikilli ánægju og stolti að Mercator Media Ltd., bakhjarl Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, snýr aftur eftir kóvíd-tímabilið til að veita efnilegum nemendum fjárhagslegan stuðning til að bæta við sig námi og þekkingu á sviði sjávarútvegs, sérstaklega þeim sem sérhæfa sig í Marel-vinnslu, fiskeldi og gæðaeftirliti. Atvinnuveiðar og fiskeldi eru meginstoðir íslensks atvinnulífs og sóknin eftir yfirburðum er óþreytandi á því sviði. Það er því ákaflega mikilvægt að efla stöðugt menntun og þekkingu þeirra sem starfa í þeim geira. Við óskum styrkþegum 2024 innilega til hamingju og vonum að þeir muni leggja sitt af mörkum til blómslegs íslensks sjávarútvegs um ókomin ár, með sérfræðiþekkingu sinni, kunnáttu og menntun.” 

Handhafar námsstyrkjanna 2024:

Þórdís ýr Snjólaugardóttir:

“Menntastyrkur Íslensku sjávarútvegssýningarinnar er mjög hvetjandi fyrir mig og kemur sér einstaklega vel í framhaldsnámi mínu í fiskeldistækni. Ég er rennismiður að mennt og var stundum orðin þreytt á að fá í hendur verkefni sem ekki voru sniðin að þörfum og kröfum þeirra sem vinna við tækjabúnaðinn sjálfan. Ég vil öðlast aukinn skilning á hvernig búnaðurinn virkar og hvernig best er að leysa tæknileg vandamál á sem hagkvæmastan og einfaldastan hátt. Styrkurinn er mjög mikilvægur til að öðlast aukna þekkingu á þeim vettvangi.“

Klaudia Magdalena Lenkiewicz:

”Ég átti ekki von á því að fá menntastyrk Íslensku sjávarútvegssýningarinnar og hann kemur sér vægast sagt mjög vel. Ég hafði talsverðar áhyggjur af framhaldi námsins vegna aukins framfærslukostnaðar og áskorana því samfara, og það er því frábært að fá þennan stuðning til frekari náms, auk þeirrar hvatningar sem í styrknum felst. Námsstyrkurinn gefur mér kost á að sinna náminu af fullum krafti og það er hreint stórkostlegt.“

Dómnefnd: Umsóknir um styrki voru metnar af dómnefnd sérfræðinga í sjávarútvegi, sem í sitja Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskóla íslands, Sigurjón Elíasson, fræðslu- og þróunarstjóri á alþjóðasviði Marel, Hrefna Karlsdóttir, sérfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, og Bjarni Þór Jónsson, fulltrúi Mercator Media/Íslensku sjávarútvegssýningarinnar á Íslandi.

Fisktækniskóli Íslands var stofnaður í Grindavík árið 2010 í því skyni að svara þörfum íslensks sjávarútvegs og landvinnslu með því að mennta hæft fólk til starfa í greininni. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í fisktækni, fiskeldi, gæðastjórnun og Marel vinnslutækni.

Fáðu nýjustu fréttir og upplýsingar á samskiptamiðlum um Íslensku sjávarútvegssýninguna 2024 (IceFish 2024) og „Fiskúrgangur skilar hagnaði” (Fish Waste for Profit). IceFish má finna á Facebook, Twitter og Linkedin.

Ef þú vilt styrkja, sýna á eða heimsækja IceFish 2024 skaltu endilega hafa samband við skipulaggjendur í síma 0044- 1329 825335 eða senda okkur skilaboð á netfangið icefish@icefish.is

 

1000020516

1000020516