Hoseth Technology frá Noregi sýnir á IceFish 2024 kerfi og búnað fyrir hráefnisvinnslu fyrir fiskeldi og hvítfiskiðnaðinn. Fyrirtækið hefur í hávegum kjörorðin „fiskur sem fær góða meðhöndlun bragðast betur“, og með áherslu á gæði og velferð fiska hefur Hoseth þróa háþróaða tækni og áherslur sem auka skilvirkni og hagkvæmni í vinnslunni.
Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að með því að nýta tímalínu-hugbúnað og AI HoT-snjallmyndavélar hafi það skapað hnökralaust og gagnsætt vinnsluferli. Kerfið býður líka upp á gagnatöku-og geymslu sem nýtist við frekari hagræðingu í vinnslustöðvum.
Kerfin eru hönnuð fyrir bæði sjó-og landeldi, flutning eininga á sjó og landi, sem og að hluta til fyrir frumvinnslu sjávarfangs.
Hoseth Technology hefur einnig þróað Harvest Pre-Chill System, en það er hannað til stuðla að auknum gæðum lokaafurða hjá viðskiptavinum. Ferlið felst í því að kæla lifandi fisk með kældum, hreinum sjó.
Með því að leggja áherslu á velferð fisksins og rétta meðhöndlun hráefnis á fyrstu stigum vinnslu tryggir kerfið auðveldari kælingu á stærra fiskmeti. Blóðrás lifandi fiska greiðir fyrir hitaflutningi frá miðsvæði þeirra og aðferð Hoseth flýtir kælingu og auðveldar vinnslu. Til dæmis dragast æðar í tálknum saman, sem leiðir til minni blóðmyndunar í flökum.
Forsvarsmenn Hoseth segja að kerfið bjóði upp á marga kosti fram yfir hefðbundnar aðferðir. Þar á meðal má nefna:
• Minni þörf fyrir ísun sjávarfangs. Fyrir vikið er minna er af bráðnu vatni í kössum og flugfraktarkostnaður því lægri.
• Aukin gæði flakanna og minna los, lengra geymsluþol og einsleit áferð.
• Minni þörf fyrir kælingu í blæðingarkerfum, sem leiðir til minni meðhöndlunar á blóðvatni.
• Sjálfstæðari vinnsla miðað við fiskstærð.
Hoseth Technology hefur líka langa reynslu af því að bregðast við blæðingu og bæta kælingu fiska í HeliX-kerjum fyrirtækisins, en þá er notuð svokölluð Super Chill-lausn til að ná kjarnahita undir núll gráður. Það kerfi, líkt og önnur HeliX-kerfi frá Hoseth, býr yfir hringrásarkerfi sem tengt er við saltvatnslausn og tryggir stýrða ofurkælingu og lágan hita á fisknum án kristöllunar.

[Hoseth.jpg] Myndatexti: Hoseth Technology er traustur samstarfsaðili sem býður upp á nýstárlegar lausnir í meðhöndlun hráefnis fyrir fiskeldi og hvítfiskiðnað.