Gestum á IceFish í ár gefst tækifæri til að kynnast hátæknilausn íslenska fyrirtækisins GreenFish, lausn sem miðar að því ná fram umtalsverðri sjálfbærni, skilvirkni og arðsemi í sjávarútvegi með því að samþætta háþróaða tækni.

Gervigreindarlíkan GreenFish spáir fyrir um magn, gæði og fyrirhugaða samsetningu afla fiskiskipa eftir landfræðilegum hnitum, byggt á víðfeðmu safni sjávargagna og veðurfræðilegra gagna. Þetta gerir veiðiskipum kleift að draga úr eldsneytisnotkun samtími því að aðstoða þau við að finna rétta fisktegund á réttum tíma, lágmarka sóun og styðja við sjálfbærar veiðar.

Líkanið nýtir söguleg gögn til að spá fyrir um veiðiafrakstur, aðstoða við auðlindastjórnun og stórauka sjálfbærni veiðiaðferða auk þess að spá fyrir um líklegustu staðsetningu flökkustofna, svo sem loðnu og makríls, á leið þeirra um íslensku lögsöguna. Með þróaðri greiningu á þessum miklu gagnasöfnum spáir GreenFish fyrir um bestu veiðistaðina og veiðitíma allt að átta daga fram í tímann með 80% nákvæmni. Með því má meðal annars draga úr kolefnislosun og olíunotkun í sjávarútvegi, tryggja sjálfbæra nýtingu fiskistofna og bæta samsetningu og gæði afla.

Forsvarsmenn GreenFish segja að þessi nákvæmu spálíkön aðskilji lausn fyrirtækisins frá eldri aðferðum í greininni, sem byggja oft á úreltum upplýsingum og túlkun á takmörkuðum gögnum. Með því að einbeita sér að rekstrarþörfum stórra fyrirtækja á sviði atvinnuveiða náist fram besta nýtingin og notkunin, sem auðveldar ákvörðunartöku og eykur heildarhagkvæmni.

GreenFish er sérsniðið til að mæta kröfum og þörfum skipstjóra og býður upp á greinargóða innsýn í tegundir, stærð og gæði fisksins sem þeir vilja veiða.

Starfsemi GreenFish er í fullu samræmi við sjáfbærnimarkmið á Íslandi og hefur m.a. hlotið stuðning frá umhverfisráðuneytinu og Hafrannsóknarstofnun. Heimsóttu GreenFish-teymið á sýningarbás Sbz 7 á IceFish 2024.

 

GreenFish

GreenFish

 

[GreenFish.jpg] Myndatexti: Með því að nota lausnir frá GreenFish geta sjávarútvegsfyrirtæki aukið fyrirsjáanleika í rekstri sínum.