Norska útgerðarfyrirtækið Lie Gruppen veitti fyrir skömmu glænýjum uppsjávartogara viðtöku, sem fékk nafnið Liafjord. Togarinn er smíðaður hjá tyrknesku skipasmíðastöðinni Cemre.

Fyrirtækið Salt Ship Design hannaði skipið, sem er 71 metra langt og 15 metra breitt. Liafjord fylgir í kjölfarið á hinu aflasæla togara Libas, sem var fyrsta skip heimsins sem knúið var með rafmagni og fljótandi jarðgasi, svokallað LNG-skip, en nokkur ár eru síðan Cemre-skipasmíðastöðin hleypti því skipi af stokkunum.

Togarinn Liafjord er vottaður af Bureau Veritas (BV) og mun sigla undir norskum fána. Þetta nýja og umhverfisvæna fiskiskip er það fyrsta í heiminum sem útbúið er með afar nýstárlegri tækni frá fyrirtækinu Wavefoil. Hún gerir mögulegt að draga út sérstakan búnað, nokkurs konar hliðarugga, í stefni skipsins til að draga úr veltingi í miklum sjógangi og lækka eldsneytiskostnað. Forsvarsmenn Cemre segja að þessi búnaður, sem fellur snurðulaust að hönnun sjálfs togarans, muni ekki aðeins draga úr eldsneytisnotkun og útblæstri, heldur einnig auka öryggi og þægindi áhafnarinnar.

Þessi tækninýjung gerir togaranum einnig kleift að sigla hraðar, jafnvel í kröppum sjó, sem markar nýtt upphaf í sögu uppsjávarskipa hvað varðar hæfni þeirra og getu, segja forsvarsmenn skipasmíðastöðvarinnar.

Auk þessa búnaðar fá finna í togaranum enn fleiri nýjungar sem gera hann umhverfisvænni, þar á meðal rafknúnar vindur, varmaendurvinnslukerfi og rafvætt tvinnknúið framdrifskerfi.

Gestir á IceFish 2024 geta hlakkað til að fá að vita meira um Cemre og nýjustu verkefni skipasmíðastöðvarinnar.

Liafjord

Liafjord

 Nýsmíðaði uppsjávartogarinn Liafjord er fyrsta fiskiskip heimsins sem búið er nýstárlegum útdraganlegum stafn-uggum frá Wavefoil.