Við afhendingu styrkjanna tilkynnti Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, að ákveðið hefði verið að veita áframhaldandi námsstyrki úr sjóðnum næstu tvö árin hið minnsta, en næsta IceFish-sýning er haldin árið 2020.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Mér er það heiður að afhenda þessa veglegu styrki úr IceFish-námssjóðnum, enda skiptir miklu máli að hvetja til dáða nemendur sem taka þátt í að skapa ný tækifæri í sjávarútvegsgreinum. Í sjávarútvegi og tengdum greinum eru að skapast fjölmörg ný störf samfara auknum rannsóknum, tækniþróun og nýsköpun, og menntun og menntastefna hlýtur ávallt að horfa til þess sem hæst ber í þeim efnum. Námsstyrkirnir úr IceFish-sjóðnum örva nemendur til að skara fram úr og ná árangri í sínum fögum og þeim ber að fagna.“

Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri IceFish: „Við höfum sem skipuleggjendur Íslensku sjávarútvegssýningarinnar ríkan skilning á mikilvægi áframhaldandi nýsköpunar og þróunar í útgerð- og landvinnslu á Íslandi.Við teljum að besta leiðin til að efla það starf felist í að styðja við bakið á þjálfun og menntun yngri kynslóðarinnar. Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá styrkþegum okkar 2017 og okkur er það því mikil ánægja að geta núna í ár, 2018, styrkt tvo mjög frambærilega og efnilega nemendur Fisktækniskóla Íslands. Við voum að þessir styrkir muni ekki aðeins gagnast þeim heldur líka sjávarútveginum í heild sinni á komandi árum. Þá höfum við ákveðið að halda áfram þessu verkefni og veita framúrskarandi námsmönnum í sjávarútvegsgreinum samsvarandi styrki næstu tvö árin hið minnsta.“

Hallgrímur Jónsson, handhafi námsstyrks IceFish 2017: "Námsstyrkurinn frá IceFish-menntasjóðnum upp á 500 þúsund krónur var ákaflega vel þeginn og jákvæður stuðningur við nám mitt. Styrkurinn hjálpaði mér að ljúka menntun minni í Marel-tækni í Fisktækniskóla Íslands og tryggja mér starf sem gæðastjóra hjá fiskeldisfyrirtæki Samherja, Íslandsbleikju ehf."

Herborg Þorláksdóttir, nemi í Marel-vinnslutækni við Fisktækniskóla Íslands: „Það er mikil upphefð að fá IceFish-styrkinn og hjálpar mér mikið fjárhagslega. Ég var hætt við námið því að ég sá ekki fram á að geta fjármagnað það, verandi nýkomin úr öðru námi. En styrkurinn úr IceFish-námssjóðnum gjörbreytir stöðunni og ég er ákaflega stolt og þakklát.“

Þórunn Eydís Hraundal, nemi í gæðastjórnun við Fisktækniskóla Íslands: „Styrkurinn úr IceFish-námssjóðnum hjálpar mér að ná lengra á menntabrautinni í sjávarútvegsfræðum og styður mig á mörgum sviðum. Hann er jákvæð og óvænt viðurkenning fyrir mig persónulega og það hvernig ég hef lagt mig fram í náminu, og styrkir þá ætlun mína að halda til framhaldsnáms í sjávarútvegs- og viðskiptafærði við Háskólann á Akureyri að loknu námi hjá Fisktækniskóla Íslands.“

Í kjölfar Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2014 gerðu forsvarsmenn hennar sér grein fyrir mikilvægi þess að fjárfesta í framtíð sjávarútvegarins og ákváðu að veita veglega námsstyrki til þeirra sem stunduðu nám í greininni. Fyrstu styrkirnir voru veittir árið 2017.

Umsóknir um styrki voru metnar af dómnefnd sérfræðinga í sjávarútvegi, sem í sitja Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskóla íslands, Sigurjón Elíasson, fræðslu- og þróunarstjóri á alþjóðasviði Marel, Guðbergur Rúnarsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Samtaka fiskvinnslustöðva, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, og  Bjarni Þór Jónsson, fulltrúi Mercator Media/Íslensku sjávarútvegssýningarinnar á Íslandi.

Fisktækniskóli Íslands var stofnaður í Grindavík árið 2010 í þeim tilgangi að uppfylla kröfur sjávarútvegsfyrirtækja í veiðum, vinnslu og fiskeldi til starfsfólks með viðeigandi þjálfun. Skólinn býður námsbrautir á sviði sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi.

Einnig er í boði netagerð eða „veiðitækni” í samstarfi við Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum í Reykjanesbæ. Í fyrstu var aðeins boðið upp á tveggja àra grunnnám i Fisktækni en síðan hefur verið byggt ofan á það með sérhæfðari nàmsleiðum. IceFish-námssjóðnum er einkum ætlað að styrkja fólk til slíks framhaldsnáms.

Taktu þátt í samtalinu á samfélagsmiðlum og fáðu nýjustu fréttir og tíðindi um Íslensku sjávarútvegssýninguna og ráðstefnuna Fiskúrgangur skilar hagnaði. IceFish er virkt á Facebook, Twitter og LindekIn.

Ef þú hefur áhuga að sýna, heimsækja eða gerast stuðningsaðili IceFish2020, hafðu þá vinsamlegast samband við skipuleggjendur í síma (0044)1329 825335 eða sendið okkur tölvupóst á netfangið icefish@icefish.is.