Dexta orkutæknilausnir ehf. sérhæfir sig í hönnun og sölu á tæknilausnum og búnaði fyrir orkuflutningsferla (hitun og kælingu), varmaendurnýtingu og aðra orku-, iðnaðar-, og framleiðsluferla.Dexta orkutæknilausnir ehf. býður uppá sérfræðiráðgjöf til lágmörkunar á orku- og vatnsnotkun fyrirtækja. Með því verður rekstur fyrirtækja umhverfisvænni, hagkvæmari og samkeppnishæfari. Dexta orkutæknilausnir ehf. hefur unnið með fiskþurrkunarfyrirtækjum frá stofnun. Hér er um að ræða hönnun þurrkferla, varmaendurnýtingarkerfa og sölu á búnaði og heildarlausnum - bæði á Íslandi og erlendis. Dexta hefur nýlega hannað vothreinsibúnað eða þvottaturna til lyktareyðingar í útblæstri frá fiskþurrkun. Lausnin felst í notkun þvottaturns (vatnsúða) með yfirborðsauka (pakki) og ósoni.
Margmiðlunargallerí
Heimilisfang:
Huldugili 62
Akureyri
603
Iceland
Vefsíða:
www.dexta.is