Sjáðu hverjir eru að fara á ráðstefnunna „Fiskúrgangur skilar hagnaði”. Hin langþráða dagskrá IceFish-ráðstefnunnar er komin út.

„Fiskúrgangur skilar hagnaði” er alþjóðleg, dagslöng ráðstefna sem sniðin er að fyrirtækjum sem stunda veiðar í atvinnuskyni, fiskeldi og fiskvinnslu. Ráðstefnan í ár beinir sjónum að virðispýramídanum í vinnslu fiskúrgangs og miðar að því að færa gestum hennar nauðsynlega þekkingu til að auka hagnað sinn með fullvinnslu hráefnis.

IceFish-ráðstefnan 2017 býður upp á fyrirlestra um það sem hæst ber í faginu og íslenska fyrirlesara sem hafa skipað sér í fremstu röð á heimsvísu í fullvinnslu sjávarfangs. Ráðstefnan einbeitir sér að umfjöllun um þær áskoranir og tæknilegu atriði sem tengjast fullvinnslu hráefnis sem hugsanlega hefur verið vannýtt, og hægt er að breyta í verðmæta vöru óháða matvælaiðnaðinum. Dagskráin er komin út – skráðu þig á ráðstefnuna og lærðu af þeim hæfustu í greininni!

Á meðal erinda má nefna:

Magnvinnsla á hliðarafurðum sjávarfangs
Sérhæfð vara - nýtingarmöguleikar fiskroðs
Leiðin á toppinn – Unnin vara, háþróað ferli
Fiskúrgangur – Risaiðnaður

Bókaðu þátttöku á vefslóðinni www.icefishconference.com. Einnig eru ennþá laus örfá tækifæri fyrir styrktaraðila sem vilja kynna afurðir sínar fyrir rétta áhorfendahópnum á rétta staðnum á rétta tímanum.

Hafðu sambnd við skipulagsteymið í síma (0044) 1329 825335 til að fá frekari upplýsingar.