Skipuleggjendur Icelandic Fisheries Conference, „Fiskúrgangur skilar hagnaði“ (Fish Waste for Profit), kynna með ánægju útgáfu bráðabirgða dagskrár ráðstefnunnar.

Ráðstefnan fer fram 14. september nk. í Smáranum, Kópavogi, í tengslum við Íslensku sjávarútvegssýninguna, IceFish17, sem nú er haldin í tólfta sinn.
„Fiskúrgangur skilar hagnaði“- ráðstefnan miðar að þessu sinni að því að auka skilning á virðiskeðjunni í nýtingu fiskúrgangs frá upphafi til enda, og fjalla um þá fjölbreyttu og skapandi möguleika sem bjóðast við nýtingu fiskúrgangs, svo að hægt sé að breyta honum í fyrsta flokks vöru fyrir starfsemi á borð við snyrtivörugeirann og lyfjaiðnaðinn.
Ráðstefnan Icelandic Fisheries Conference er ætluð þeim aðilum sem vilja öðlast gleggri skilning á virðiskeðjunni í nýtingu fiskúrgangs og hvernig þeir geta hámarkað ávöxtun af fjárfestingum sínum í sjávarafurðum með nýsköpun og innsýn í þróun greinarinnar, samtímis því að efla tengslin við lykilmenn í þessum iðnaði.
Á meðal dagskrárliða má nefna þessi erindi:
Málstofa eitt: Frá upphafi og hálfa leið – stórvinnsla fiskúrgangs (Bottom to middle - Large scale processing of fish waste)
„Large scale upgrading of fish processing side streams at the bottom of the pyramid“ - Davíð Tómas Davíðsson, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Codland. (‘’Large scale upgrading of fish processing side streams at the bottom of the pyramid”, David Tomas Davidsson, R&D, Codland
„Vinnsla lýsis til manneldis úr hliðarafurðum fiskvinnslu” – Snorri Hreggviðsson, framkvæmdastjóri Margildi, stofnandi og eigandi.( The creation of fish oils for human consumption from fish processing side products, Snorri Hreggvidsson, CEO, Founder & Owner, Margildi)
Málstofa tvö: Sérhæfð vara - nýtingarmöguleikar fiskroðs (“Niche products – uses for discarded fish skin”)
„ Sútun fiskroðs við framleiðslu leðurvara” – Gunnsteinn Björnsson, framkvæmastjóri Atlantic Leather. (“Tanning of fish skin for leather goods,” Gunnsteinn Björnsson, CEO, Atlantic Leather).
Málstofa þrjú: Leiðin á toppinn – Unnin vara, háþróað ferli (Rising to the top – High value products, high intensity processes)
„Fæðubótarefni“ – Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Protis (Ice Protein). (‘Food Supplements’, Hólmfríður Sveinsdóttir Ph.D., Managing Director, Protis (Ice protein))
„Snyrtivörur“ – Hrönn Margrét Magnúsdóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Feel Iceland. (‘Cosmetics’, Hrönn Margrét Magnúsdóttir, Co-Founder & CEO, Feel Iceland)
Málstofa fjögur - Fiskúrgangur – Risaiðnaður.
„Mikilvægi þess að fjárfesta í endurnýtingu úrgangs“ – Þór Sigfússon, stofnandi og framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. (‘The importance of investing in the waste reuse sector’, Thor Sigfusson, Managing Director, Iceland Ocean Cluster)
„Fjárfestingar í verkefnum á sviði sjávarútvegs,“ – Brynjólfur Bjarnason, fjárfestir. (‘Investment in fisheries projects’, Brynjólfur Bjarnason, Investor)
Hér geturðu fundið bráðabirgðadagskrána og alla þá fyrirlesara sem búið er að staðfesta.
Ef þig vantar frekari upplýsingar um ráðstefnuna eða viltu taka þátt, flytja erindi eða styrkja, hikaðu ekki við að hafa samband við skipulagsteymið í síma (0044) 1329 825335 eða sendu á tölvupóstfangið info@icefish.is.