Morgère er í ár að flytja frá hafnarbakkanum í Saint Malo þar sem fyrirtækið hefur haft aðsetur í nærri heila öld. Þann 1. september hefst framleiðsla í nýrri verksmiðju í nokkurra kílómetra fjarlægð. Flutningurinn gefur einnig tækifæri til þess að uppfæra framleiðslutækin, og nú er verið að setja upp nýjar CNC vélar.

Á þessu ári hyggst einnig Michel Dagorn, sem hefur stýrt Morgère síðan 2009, setjast í helgan stein og sem stendur vinna þeir Pascal Reverseau saman að því að tryggja að stjórnendaskiptin gangi vel fyrir sig.

“Við erum einnig að þróa nýjar vörur og hlökkum til að sýna viðskiptavinum okkar þær á Íslensku sjávarútvegssýningunni,” sagði hann.

Íslenskir skipstjórar þekkja nú þegar vel Exocet og Osprey hlerana frá Morgère, sem Ísfell hefur umboð fyrir á Íslandi. Þeir kunna að meta styrk og stöðuleika þessara fjölhæfu hlera.

Exocet flothlerarnir hafa staðið sig vel allt frá því þeir komu fyrst á markað, og hafa nú verið endurbættir með sveigðum kanti sem tryggja hámarksopnun ásamt því að lágmarka togspyrnu til að halda eldsneytisnotkun niðri.

Osprey miðsjávarhlerarnir hafa minni togspyrnu og skila einnig framúrskarandi árangri. Þeir henta sérlega vel fyrir veiðimynstur íslenskra botnfisktogara.

“Þetta er virkilega spennandi ár fyrir Morgère, með nýja verksmiðju, nýjar vörur á leiðinni - og nýjan framkvæmdastjóra,” segir Pascal Reverseau, en tekur fram að vissulega fylgi því áskoranir að koma inn í fyrirtækið á þessum tíma, með allar þær takmarkanir sem á hvíla - en um leið sé það áhugavert.

Íslenska sjávarútvegssýningin verður líka ákveðinn áfangi þar sem hún er fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn í sjávarútvegi frá því hann gekk til liðs við Morgère.

“Ég hef ekki getað hitt viðskiptavini okkar víðs vegar að mánuðum saman, þannig að það er okkur kærkomið að geta á Íslensku sjávarútvegssýningunni hitt samstarfsaðila okkar og viðskiptavini, og sýnt þeim einnig vörur okkar. Morgère hefur alltaf unnið náið með skipstjórum við þróun á trollhlerum okkar, og viðskiptavinir okkar kunna líka að meta það að við séum ávallt reiðubúin til að veita ráð og tæknilega aðstoð,” segir hann.

“Þannig að svo sannarlega hlökkum við til Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.”

Ef þú hefur áhuga á að sýna, styrkja, koma sem gestur eða flytja erindi á IceFish 2021, hringdu þá í +44 01329 825 335 eða sendu tölvupóst á info@icefish.is.

Sölumenn á Íslandi: Ómar Már Jónsson Tel: +354 893 8164 omar@icefish.is eða Bjarni Þór Jónsson GSM: +354 896 6363 bjarni@icefish.is

Morgere Staff