Ekki með dagskrána á ráðstefnu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar á hreinu? Ekkert mál, hér er annar hluti opinberu leiðsagnarinnar um ráðstefnuna í ár.

Seinni hluti ráðstefnunnar Fish Waste for Profit (Fiskúrgangur skilar hagnaði) fjallar um efri hluta virðispýramídans og hvernig búa má til verðmætar vörur sem krefjast mikillar vinnslu.
Önnur málstofa: Hrönn Margrét Magnúsdóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Feel Iceland
Erindi Hrannar Margrétar mun fjalla um möguleika þess að búa til hágæða húðvörur úr fiskúrgangi, vörur sem eiga heima í fyrsta flokks snyrtivöruverslunum um víða veröld. Hrönn er með meistaragráðu í alþjóðlegum viðskiptum, ásamt víðtækri reynslu í markaðssetningu á heimsvísu og í vöruþróun fyrir lækningatæki.
Önnur málstofa: Gunnsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri og sérfræðingur í sútun hjá Atlantic Leather
Gunnsteinn mun fjalla um framleiðslu fyrirtækisins og þá möguleika sem fiskroð býr yfir fyrir leðuriðnaðinn. Í erindi sínu mun hann útskýra hvernig ná má fram hámarksverðmætum úr fiskúrgangi, samtímis því að mæta þörfum markaðsins fyrir framandi leður sem unnið er með sjálfbærum hætti.
Önnur málstofa: Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Protis (IceProtein)
Hólmfríður mun fjalla um starf sitt hjá Protis og nýtingu próteina úr sjávarfangi sem virk efni í matvælum og fæðubótaefnum. Í erindi sínu mun hún leggja áherslu á þá staðreynd að í sjávarlífverum felst gríðarleg uppsprettu fyrir næringarefni á borð við prótín og fituefni, sem og nýfæði með sértæka eiginleika á borð við ensím, peptíða, steinefni og vitamín.
Þriðja málstofa: Guðmundur Magnús Hermannson, yfirmaður klínískrar þróunar hjá Kerecis
Tvívegis er fjallað um Kerecis á ráðstefnunni í ár. Í þessum seinni hluta verður farið yfir þann árangur sem náðst hefur með notkun fiskroðs í lækningaskyni, þar á meðal þróunarferli, leyfisferli, vörulínur og vörur í bígerð.
Þriðja málstofa: Patrick Arnold, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Sjávarklasans á Nýja Englandi
Stuðningsaðilar okkar hjá Sjávarklasanum á Nýja Englandi munu fræða þátttakendur um ferli fullvinnslu fiskúrgangs í Maine-ríki og hvernig hugarfarið er að breytast í þeim efnum. Árangur á því sviði hefur náðst í samstarfi við frumkvöðla í ríkinu, humarvinnslustöðvar og aðra aðila á svæðinu sem vinna sjávarfang úr Norður-Atlantshafinu, í því skyni að þróa hágæðavörur úr fiskúrgangi.
Fjórða málstofa: Pallborðsumræður sérfræðinga í fjárfestingum í sjávarútvegi, með áherslu á mikilvægi þess að fjárfesta í sprotastarfsemi sem snýr að fullvinnslu fiskúrgangs.
Á meðal þátttakenda í pallborðsumræðunum eru Dr. Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans, Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis, Brynjólfur Bjarnason, fyrrum forstjóri Granda og fjárfestir hjá Marinvest.
Smelltu hér til að sjá dagskránna í heild sinni.
Ef þessi umfjöllunarefni tengjast þínum rekstri skaltu bóka þátttöku og heyra um nýjustu þróun mála frá sérfræðingunum á Fish Waste for Profit-ráðstefnunni.
Til að fá frekari upplýsingar skaltu hafa samband við skipuleggjendur í síma (0044) 1329 825335 eða senda tölvupóst í netfangið info@icefish.is. Til að bóka skaltu heimsækja heimasíðu okkar www.icefishconference.com/e-commerce.