Fyrirtækið Aflhlutir ehf. var stofnað í október 2006.

Starfsmenn Aflhluta einbeita sér að sölu og þjónustu á vélbúnaðiþjónustuhlutum fyrir sjávvarútveginn og verktaka. Okkar markmið er að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi pjónustu sem, felst meðal annar, í því að útvega varahluti og vélbúnað á sem skemmstum tíma og á mjög samkeppnishæfum verðum í ýmsar gerðir af vélum og búnaði sem í noktun eru, bæði til sjós og lands. Einnig kappkostum við að veita tæknilega þjónustu í gegnum síma eftir þörfum viðskiptavina  okkar. Eigendur Aflhluta ehf.,  Björb Jóhann Björnsson og Hrafn Sigurðsson, eru með áratuga reynslu í útvegun á varahlutum í flest allt sem snýr að sjávarútvegi og verktökum. Mikil reynsla liggur hjá fyrirtækinu í að leysa úr tæknilegum úrlausnum. Reynsla og þekking sameinast í gegnum starf okkar sem vélstjórar á fiskiskipum, viðgerðarmenn á vélbúnaði bæði til sjávar og síðari ár í útvegun varahluta og sölustörfum á vélbúnaði um borð í trillur jafnt og stor fiskiskip.

 

 

 

Heimilisfang:
Drangahraun 14
220 Hafnarfjordur
Iceland

Vefsíða:
www.aflhlutir.is

Samfélagsmiðlar:
Facebook