„Fyrstir-koma-fyrstir-fá” 15% afslátturinn rennur út á föstudaginn – bókaðu núna til að verða ekki svekkt(u)r og sár! Ráðstefnan fer fram að þessu sinni 14. september í Smáranum, Kóapvogi.

Þetta er í annað skipti sem sjávarútvegsráðstefnan „Fiskúrgangur skilar hagnaði” er haldin og dagskráin er þétt setin sérfræðingum úr greininni. Dagskráin fylgir virðispýramídanum og þar verður fjallað um hvernig vinnsla aukaafurða fer fram í því skyni að skapa verðmætar vörur og auka hagnaðinn af sjávarfangi
Ef þú vilt tengjast aðilum sem sérhæfa sig í framleiðslu hliðarafurða sjávarfangs skaltu bóka núna og spara þér 15%
Næstum helmingi af þeim fiski sem veiddur er til manneldis er fargað áður en fiskurinn kemst á neytendamarkað. Í þessu felst að umtalsverðum tækifærum til að búa til aukinn hagnað er kastað á glæ. Íslensk fyrirtæki, frumkvöðlar í þessari grein, hafa þróað margvíslega nýtingarmöguleika á þessum vanrækta fjársjóði, meðal annars við framleiðslu ensíma, lyfja, fæðubótaefna, snyrtivara og tískuvarnings, svo fátt eitt sé nefnt af því sem býðst á íslenskum markaði.
Ef þú hefur áhuga á að auka hagnað þinn skaltu sækja IceFish-ráðstefnuna þar sem þú getur lært af þeim bestu í greininni. Á dagskránni er m.a. fjallað um magnvinnslu hliðarafurða, sérhæfðar vörur, hágæðavörur og fjárfestingar.
Bókaðu núna til að missa ekki af lestinni!
Mundu að þátttakendur á ráðstefnunni fá ókeypis aðgang að Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem stendur í þrjá daga og er sótt af yfir 15 þúsund manns.
Bókaðu þátttöku á vefslóðinni www.icefishconference.com eða fáðu frekari upplýsingar í síma (0044) 1329 825335.