Nýja útibúið í Reykjavík mun þjóna vaxandi hópi viðskiptavina fyrirtækisins sem sinna sölu og framleiðslu á sjávarafurðum og annarri neysluvöru. Þátttaka fyrirtækisins í Íslensku sjávarútvegssýningunni er liður í því að hasla sér völl á íslenska markaðinum og efla samskiptin við alþjóðlega viðskiptavini.

“DC-Concept hefur verið í fararbroddi síðustu 17 árin í því að útvega sjávarútvegsfyrirtækjum viðskiptafjármögnun og er með viðskiptavini á Íslandi og annars staðar í heiminum, svo sem í Kína, Víetnam, Argentínu, Noregi, Spáni, Tyrklandi, Bandaríkjunum, Máritíus og Mósambik. Íslenska sjávarútvegssýningin veitir okkur mikilvægt tækifæri til þess að styrkja núverandi viðskiptasambönd en einnig að kynna fyrir nýjum fyrirtækjum á hvern hátt við getum aðstoðað við að auka verðmætasköpun. Sem dæmi má nefna að alþjóðlegt fyrirtækjanet okkar á sviði sjávarútvegs getur gagnast nýjum fyrirtækjum með þeim hætti að þau geta fengið aðstoð sérfræðinga á hverjum stað þegar stigið er inn á ný markaðssvæði. Við hlökkum einnig til að bjóða völdum viðskiptavinum til viðræðna um aðfangakeðju okkar til viðbótar við fjármögnun,“ sagði John Stillwaggon, framkvæmdastjóri DS-Concept USA.

DS-Concept þjónar íslenskum móðurfyrirtækjum og erlendum útibúum þeirra með fjármögnun bæði fyrir útflutning og meðan á útflutningi stendur. Boðið er upp á margvíslega tilhögun fjármögnunar til þess að stuðla að auknu fjárflæði viðskiptavinanna svo þeir geti aukið veltu sína, gert stærri pantanir og vaxið.  

Sveinn Reyn­is­son, framkvæmdastjóri DS Concept á Íslandi, segir að þjónus­ta fyr­ir­tæk­is­ins sé ein­mitt það sem ís­lenski sjáv­ar­út­veg­ur­inn þurfi á að halda; skrif­stof­ur á helstu mörkuðum ásamt sér­fræðing­um á hverju svæði, sérþekk­ing á alþjóðlegri viðskipta­fjár­mögn­un og sér­sniðnar lausn­ir er gera fyr­ir­tækj­um kleift að vaxa á sama tíma og kjarn­a­starf­sem­inni er sinnt.