Fiskroð hefur rutt sér til rúms í bæði lyfjaiðnaðinum og tískuiðnaðinum seinustu árin. Hugmyndaríkir vísindamenn hafa uppgötvað að þetta próteinríka efni býr yfir eiginleikum sem gerir það ákaflega hentugt við meðhöndlun ýmissa læknisfræðilegra kvilla. Hægt er að nýta roðið til að stuðla að endurvexti á sködduðum líkamsvef í alvarlegum tilfellum á borð við brunasár, sem og öðrum sárum á húð, og er það einfaldlega lagt beint ofan í sár sem síðan er búið um með hefðbundum sáraumbúðum. Prótein úr fiskroði hefur einnig verið notað með árangursríkum hætti við meðhöndlun minniháttar húðkvilla á borð við sóríasis og exem.

Fiskroð er auðugt af kollagen og fitusýrum sem styrkja græðsluferli líkamans og þó að það sé þunnt ásýndum kemur ending þess og styrkleiki á óvart. Að auki er það nú þegar aðgengilegt og til staðar í miklum mæli, sem gerir það að heillandi valkosti við sambærilegar vörur unnar úr svínahúð og mannshúð.

Önnur frumleg nýting á fiskroði er sútun þess svo hægt sé að nota það við framleiðslu leðurs í alls kyns fylgihluti í tískuheiminum.

Margskonar fiskroð hentar til sútunar og hvert og eitt skilar mismunandi niðurstöðu og útliti, sem þýðir að hægt er að bjóða viðskiptavinum upp á fjölbreytt úrval mismunandi stílbrigða. Hægt er að lita roðið og það er nægjanlega endingargott til að unnt sé að nota það í skógerð, handtöskur, fatnað og fylgihluti. Að sama skapi er þetta umhverfisvæn leið til að klæðast leðri í ljósi þess að það er unnið úr fiski sem veiddur hefur verið og unninn á sjálfbæran hátt.

Á ráðstefnunni Fish Waste for Profit, sem útleggja má sem Fiskúrgangur skilar hagnaði, verður meðal annars að finna dagskrárlið sem nefnist “Niche products – uses for discarded fish skin” eða Sérhæfð vara - nýtingarmöguleikar fiskroðs. Ef þig langar að flytja erindi um þennan efnisflokk skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur. Ef þú hefur áhuga á að hasla þér völl í sprotastarfsemi í þessum geira skaltu sömuleiðis skrá þig á ráðstefnuna og kynnast háttsettum sérfræðingum sem búa yfir þeirri þekkingu sem þú þarfnast.

Ráðstefnan fer fram 14. september næst komandi, í Smáranum Kópavogi. Miðasala fyrir þátttakendur er hafin. Frekari upplýsingar má fá í netfanginu jgwynn@mercatormedia.com, en einnig er unnt að hringja í síma (0044)1329825335.