Sýningin er haldin á þriggja ára fresti að
beiðni sýnenda því þannig geta þeir kynnt nýmæli á hverri einustu sýningu.
Íslenska sjávarútvegssýningin bauð að þessu
sinni upp á setningarathöfn, fyrstu IceFish-ráðstefnuna, Fiskúrgangur til
hagnaðar (http://www.icefishconference.com/) og viðburð
þar sem menn ná að hittast og mynda tengsl auk tveggja ráðstefna í viðbót og
hinna vinsælu Íslensku sjávarútvegsverðlauna.
Aldrei hafa jafn margir gestir sótt
ráðstefnuna og síðast og allir sýningarbásarnir seldust upp þannig að allir
þeir sem starfa á sviði sjávarútvegs gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
Rúmlega 500 sýnendur komu frá 32 löndum og fimm heimsálfum, og þar gat á að
líta allt frá mjög fjölbreyttum tækjabúnaði til veiða og vinnslu til vinnslu
aukaafurða úr fiskúrgangi og margþættar nýtingarlausnir. Nýir sýnendur
frá Kína, Þýskalandi, Japan, Tyrklandi og Bandaríkjunum kynntu vörur sínar á
sýningunni sem stóð í þrjá daga. Eftirspurn var mikil, sýningarbásar runnu út
eins og heitar lummur og seldust upp.
Aðsókn óx um 12% miðað við sýninguna 2011
þannig að alls komu 15.219 gestir á þessa fjölsóttustu Íslensku
sjávarútvegssýningu hingað til. Við fengum gesti frá fjölda ríkja um heim allan
en það endurspeglar mikilvægi sýningarinnar og ráðstefnunnar á sviði
sjávarútvegs.
Sýnendur
og gestir 2017
Biddu um upplýsingar um allar hliðar Íslensku
sjávarútvegssýningarinnar 2017, IceFish-ráðstefnunnar eða afhendingu sjávarútvegsverðlaunanna
með kvöldverði hér.
Skoðaðu myndasafnið frá Íslensku
sjávarútvegssýningunni og sjávarútvegsverðlaununum 2014: