Öll helstu samtök og stofnanir styðja IceFish 2017

Íslenska sjávarútvegssýningin og
sjávarútvegsverðlaunin eiga rót að rekja til ársins 1984 og hafa meira en
tvöfaldast að umfangi síðan þá. IceFish er haldin þriðja hvert ár að beiðni
sýnenda en það tryggir að nýjar vörur og þjónusta eru kynntar á sýningunni sem
hefur sannað sig sem mikilvægur viðburður á heimsvísu hvað sjávarútveg varðar.

Á sýningunni er fjallað um allar hliðar sjávarútvegsins, allt frá veiðum og
fiskileit til vinnslu og pökkunar, markaðsetningar og dreifingar á fullunnum
afurðum.

Viðburðurinn hefur byggst á trausti,
áreiðanleika og kröfum markaðarins. Við leggjum alla áherslu á nýjungar og
skilvirkni þannig að allir þeir sem starfa við sjávarútveg geti fengið að
kynnast nýmælum í þróun og væntanlegum vörum og framleiðslu. Við njótum
stuðnings helstu fyrirtækja í heimshlutanum og innan sjávarútvegsins vegna
áherslunnar sem við leggjum á gæði sýningarinnar og þau eiga mikinn þátt í því
að sýningin er jafn vel heppnuð og raun ber vitni.

Helstu samtök og stofnanir Íslensku
sjávarútvegssýningarinnar:

  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
  • Samtök iðnaðarins
  • Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Landssamband smábátaeigenda

Hægt
er að afla sér nánari upplýsinga um sýninguna með því að hafa samband við
sýningarstjórn IceFish í síma +44(0)1329 825335 eða í netfanginu icefish@icefish.is

All news
22-24 September

Join the conversation at the conference

Book your place