Framkvæmdastjóri
nýja fyrirtækisins er Haraldur Árnason
sem áður starfaði hjá Hampiðjunni í yfir tuttugu ár. Að hinu nýja fyrirtæki
standa Skaginn 3X, Nautic , Kælismiðjan Frost, Brimrún , Naust Marine og
Verkfræðistofan Skipatækni sem öll hafa á undanförnum árum komið að hönnun,
þróun, smíði og sölu á búnaði og skipum til veiða og vinnslu á sjávarfangi.
Haraldur
sagði að markmiðið væri að bjóða útgerðum upp á heildarlausnir í hönnun skipa
og útvegun tækjabúnaðar með það fyrir augum að hámarka afköst og árangur alveg
frá byrjun. Þótt fyrirtækið sé nýstofnað státa þeir aðilar sem að því standa af
langri reynslu á þessu sviði. Öll hafa fyrirtækin komið við sögu skipanna sem
HB Grandi og Samherji hafa verið með í smíðum í skipasmíðastöðvum Celiktrans og
Cemre í Tyrklandi síðustu misserin.
„Íslenskur sjávarútvegur og iðnaður hafa
ávallt verið í fararbroddi hvað þekkingu og tækni varðar og samstarf þessara
fyrirtækja getur styrkt þá stöðu enn frekar“ segir Finnbogi Jónsson, sem er
stjórnarformaður hins nýja fyrirtækis.
Frekari upplýsingar um Knarr Maritime
má fá á sýningarbás B22 á Íslensku sjávarútvegssýningunni í haust.