Íslensku
sjávarútvegsverðlaunin eru afhent við hátíðlega athöfn að afloknum fyrsta
sýningardegi en gestgjafar þar eru atvinnuvegaráðuneytið, sem sjávarútvegur
fellur undir, og bæjarstjórn Kópavogs.
Listinn yfir þau
fyrirtæki og einstaklinga sem hlotið hafa Íslensku sjávarútvegsverðlaunin er
bæði langur og fjölbreyttur og nær til bæði gamalreyndra fyrirtækja í greininni
og byrjenda sem heiðraðir eru fyrir nýskapandi starfsemi.
„Sjávarútvegsverðlaunin
eru einn af lykilþáttum hverrar sýningar. Þau fyrirtæki og einstaklingar sem
hljóta þau fá undantekningarlaust mikla athygli, bæði hjá íslenskum og
alþjóðlegum fjölmiðlum. Ekki síst er beðið með eftirvæntingu tilkynninga um
nýsköpunarverðlaun, framúrskarandi íslenskan skipstjóra og
sjávarútvegsfyrirtæki,” sagði sýningarstjóri Mercator Media, Marianne
Rasmussen-Coulling.
„Öll fyrirtæki eiga
möguleika á að hljóta verðlaun, alveg burtséð frá stærð. Viðmiðið er
einfaldlega það að um sé að ræða snjalla lausn á sviði vöru eða þjónustu sem
iðngreinin hefur þörf fyrir. Ef sýnandi á Íslensku sjávarútvegssýningunni hefur
upp á eitthvað nýtt og athyglisvert að bjóða sem sjávarútvegurinn þarf að vita
að fáanlegt sé, eða ef einhver hefur áhuga á að tilnefna annað fyrirtæki, er
viðkomandi hvattur til að fylla út eyðublað um tilnefningu á netinu og koma því
á framfæri við dómnefndina.”
Lokafrestur til að skila
inn tilnefningum er 31. júlí nk., svo það er engin ástæða til að slá því á
frest!
Hægt er að nálgast eyðublað um tilnefningar á
slóðinni: http://www.icefish.is/is/icelandic-fisheries-awards/icelandic-fisheries-awards-2017