HB Grandi lét smíða tvö uppsjávarskip hjá
Celiktrans skipasmíðastöðinni í Tyrklandi í stað þriggja eldri skipa sem síðan
hafa verið seld, eitt til Noregs og tvö til annarrar íslenskrar útgerðar. Í
framhaldi af þessu var samið um smíði á þremur nýjum botnfisktogurum, einnig
hjá Celiktrans. Fyrstur þeirra, Engey RE, kom til Íslands í lok síðasta árs og
hefur síðan legið við bryggju á Akranesi þar sem Skaginn 3X hefur verið að koma
fyrir fullkomnum búnaði á vinnsludekkinu.
Áætlað er að Engey RE haldi í fyrstu veiðiferð
sína í þessari viku. Skipið er hið fyrsta af nýrri kynslóð ferskfisktogara sem
Íslendingar hafa samið um smíði á í Tyrklandi. Í kjölfarið fylgja systurskipin
Akurey og Viðey sem HB Grandi er einnig
með í smíðum. Nokkrar aðrar útgerðir eru einnig að endurnýja skip sín, þeirra á
meðal Samherji sem tók nýlega á móti nýjum Kaldbaki EA frá Cemre
skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Samherji á von á tveimur öðrum togurum sömu
gerðar og FISK Seafood fær einn.
Nú hefur HB Grandi tilkynnt ákvörðun sína um
að fjárfesta enn meira í nýsmíðuðum skipum með því að bjóða út nýjan 81 metra langan
frystitogara með 1.000 tonna lestarrými. Rolls-Royce í Noregi hannar skipið.
Gert er ráð fyrir að ákvörðun um smíðina liggi fyrir í maímánuði næstkomandi og
að skipið verði afhent í árslok 2019.