Valka leggur aðaláherslu á hátæknivélbúnað með gríðarsnjöllum hugbúnaði og
þannig nær fyrirtækið að bjóða háþróuð fiskvinnslukerfi sem uppfylla allar þarfir
mjög kröfuharðrar iðngreinar. Flaggskip Völku er skurðarvélin sem nýtir sér
röntgentækni til að finna smábein í flökum, les stærð og þyngd hvers einasta
flaks með nákvæmri þrívíddarskynvirkni og notar þrýstivatn til að skera þau
niður í rétta stærð í samræmi við framleiðslukröfur. Fiskvinnslukerfi
fyrirtækisins hafa notið umtalsverðrar hylli hjá fiskvinnslum í landi en næsta
skref er að setja þau um borð í skip. Fyrsta skurðarvélin frá Völku var sett
upp í norska togaranum Ramoen í fyrra
og tveggja línu skurðarvél er nú komin í notkun í íslenska verksmiðjutogaranum Sólbergi.
Það er stórt skref að setja svo flókinn tæknibúnað upp í skipi en
starfsmenn Völku eru sannfærðir um að fullvinnsla afla um borð í
verksmiðjutogurum muni taka stórstígum framförum með hinum háþróaða búnaði
fyrirtækisins. Valka sýnir röntgenskurðartækni sína á Íslensku
sjávarútvegssýningunni í ár en fyrirtækið hefur verið tekið þátt í mörgum fyrri
sjávarútvegssýningum og hlaut meðal annars verðlaun sem Framúrskarandi birgir
fiskvinnslunnar á IceFish 2014.
„Valka hefur tekið þátt í öllum sýningum IceFish síðan 2004,” sagði markaðsstjóri fyrirtækisins, Ágúst Sigurðarson.
„Við erum fyrirtæki í vexti og það hefur sýnt sig að Íslenska
sjávarútvegssýningin er okkur afar mikilvægur tengiflötur við fólk hvaðanæva úr
greininni. Andrúmsloftið á sýningunni er einstaklega gott og við höfum verið
mjög ánægð með gesti okkar sem gegna mikilvægum hlutverkum hver á sínum stað og
gefa sér góðan tíma til að kynna sér það sem við höfum fram að færa.”