„Fyrir einum til tveimur áratugum voru 120-130
stór fiskiskip í íslenska flotanum en nú hefur þeim fækkað í 50 stór og
velútbúin skip. Nýja Sólbergið er prýðilegt dæmi um þetta, þar sem einn nýr
togari leysir tvo eldri af hólmi.“
Samfara því að flotinn breytist hafa nemarnir
sömuleiðis tekið breytingum. Þórir segir að trollin séu ekki lengur þakin eins
mörgum nemum og áður var. Þetta stafi fyrst og fremst af tækniþróun sem leitt
hafi til þess að nemarnir hafi nú margs konar hlutverki að gegna. Nemarnir séu
færri en hafi miklu fjölbreyttari virkni.
„Við tökum þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni
að þessu sinni eins og venjulega,“ segir Þórir og bætir við að ScanBas
hermirinn sem þeir séu með á skrifstofunni fyrir skipstjóra til að prófa sig
áfram með verði staðsettur á sýningarbás fyrirtækisins. „Við erum þess
fullvissir að það verði mikill áhugi á því tæki.“
Nýja ScanBas 365 stýrikerfið er flaggskip
Scanmar og kemur í stað eldra kerfis sem verið hefur í notkun síðastliðin 15
ár. ScanBas 365 var hannað frá grunni og notar Windows viðmót sem heldur utan
um persónulega reynslu hvers og eins.
„Við byrjuðum að kynna kerfið fyrir íslenskum
sjávarútvegsmönnum á síðasta ári og viðbrögðin hafa verið sérstaklega jákvæð. Við
höfum selt og sett upp nokkur kerfi. Skipstjórar kunna vel að meta nýjungarnar
sem við höfum innleitt enda geta þeir nú séð nákvæmlega hvernig veiðarfærin
haga sér í sjónum.