Nýja
útibúið í Reykjavík mun þjóna vaxandi hópi viðskiptavina fyrirtækisins sem
sinna sölu og framleiðslu á sjávarafurðum og annarri neysluvöru. Þátttaka
fyrirtækisins í Íslensku sjávarútvegssýningunni er liður í því að hasla sér
völl á íslenska markaðinum og efla samskiptin við alþjóðlega viðskiptavini.
“DC-Concept
hefur verið í fararbroddi síðustu 17 árin í því að útvega
sjávarútvegsfyrirtækjum viðskiptafjármögnun og er með viðskiptavini á Íslandi
og annars staðar í heiminum, svo sem í Kína, Víetnam, Argentínu, Noregi, Spáni,
Tyrklandi, Bandaríkjunum, Máritíus og Mósambik. Íslenska sjávarútvegssýningin
veitir okkur mikilvægt tækifæri til þess að styrkja núverandi viðskiptasambönd en
einnig að kynna fyrir nýjum fyrirtækjum á hvern hátt við getum aðstoðað við að
auka verðmætasköpun. Sem dæmi má nefna að alþjóðlegt fyrirtækjanet okkar á
sviði sjávarútvegs getur gagnast nýjum fyrirtækjum með þeim hætti að þau geta
fengið aðstoð sérfræðinga á hverjum stað þegar stigið er inn á ný markaðssvæði.
Við hlökkum einnig til að bjóða völdum viðskiptavinum til viðræðna um aðfangakeðju
okkar til viðbótar við fjármögnun,“ sagði John Stillwaggon, framkvæmdastjóri
DS-Concept USA.
DS-Concept
þjónar íslenskum móðurfyrirtækjum og erlendum útibúum þeirra með fjármögnun
bæði fyrir útflutning og meðan á útflutningi stendur. Boðið er upp á
margvíslega tilhögun fjármögnunar til þess að stuðla að auknu fjárflæði
viðskiptavinanna svo þeir geti aukið veltu sína, gert stærri pantanir og vaxið.
Sveinn Reynisson, framkvæmdastjóri DS Concept á Íslandi, segir
að þjónusta fyrirtækisins sé einmitt það sem íslenski sjávarútvegurinn
þurfi á að halda; skrifstofur á helstu mörkuðum ásamt sérfræðingum á hverju
svæði, sérþekking á alþjóðlegri viðskiptafjármögnun og sérsniðnar lausnir
er gera fyrirtækjum kleift að vaxa á sama tíma og kjarnastarfseminni er
sinnt.