Uppsjávarskipin
Víkingur og Venus voru afhent HB Granda árið 2015 og leystu af hólmi fjögur
eldri skip. Í framhaldi af þessu gerði HB Grandi svo annan samning við
Celiktrans um smíði þriggja botnfiskskipa af nýrri kynslóð sem hönnuð eru af
Nautic. Fyrsta skipið, Engey, hefur þegar verið afhent og er um það bil að
hefja veiðar. Hin skipin tvö, Akurey og Viðey, eru langt komin í smíði.
Celiktrans
skipasmíðastöðin tók fyrst þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni árið 2014 og
verður aftur þátttakandi í ár og byggir þá á þeim árangri sem stöðin hefur náð
nú þegar á Íslandi.
Að
sögn Volkan Urun hjá Celiktrans leggur stöðin áherslu á að ná til nýrra
viðskiptavina á Norðurlöndum og þátttakan í sýningunni er lykilatriðið í þeirri
viðleitni.
„Við
horfum til Íslands, Færeyja, Danmerkur og Noregs í þessu sambandi,“ sagði hann.
„Endurnýjun fiskiskipaflotans á Íslandi kemur að fjórðungi frá okkar
skipasmíðastöð svo okkar staða er góð og við höfum gott forskot.
Hann
bætti því við að hagkvæmt væri fyrir skipasmíðastöð að þrjú ár liðu milli
sýninga. „Árið 2014 voru Víkingur og Venus í
smíðum og á sýningunni það ár undirrituðum við samninga um smíði þriggja
ferskfisktogara. Þannig að þegar sýningin í ár verður haldin hafa þessi tvö uppsjávarskip
verið í rekstri í tvö ár, einn ferskfisktogari verður á veiðum og annar um það
bil að hefja veiðar. Þetta sýnir greinilega að við erum færir um að afhenda ný
skip fljótt og vel,“ sagði hann.
Frekari
upplýsingar um Celiktrans skipasmíðastöðina má fá á sýningarbás G20 á Íslensku
sjávarútvegssýningunni.