Þeir sem flytja erindi á ráðstefnunni fá einstakt tækifæri til að styrkja og efla tengslanet sitt í návígi við alþjóðlega forystumenn sem starfa á sviði nýtingar fiskúrgangs til verðmætasköpunar. Dagskráin hefur líka það markmið að beina sjónum að raunverulegum afrekssögum þeirra sem notið hafa velgengni í greininni og fer í saumana á því hvers vegna nýting fiskúrgangs er orðin að umfangsmiklum iðnaði.
Í lokaútkallinu eftir erindum koma þessir efnisflokkar helst til greina:
Vinnsla á fiskúrgangi í stórum stíl
– Áburður
– Fiskiolíur
– dýrafóður
Not fyrir fiskroð
– litun vefnaðar
– til lækninga
Verðmætar vörur
– líftækni
– vörur til manneldis
– snyrtivörur
Nýjar og framsæknar vinnsluaðferðir og tæki
Fiskúrgangur: Stór atvinnugrein
– Fjárfestingarannsóknir, hvers vegna að fjárfesta, að hverju þarf að gæta
– Fjárhagslegur ávinningur af því að nýta allan fiskinn – frásagnir af fyrirtækjum sem hafa náð að hámarka hagnað sinn.
Að skapa verðmæti úr skeljum krabba- og skeldýra
Nýting fiskúrgangs var smá í sniðum fyrir tveimur áratugum en hefur á þeim tíma vaxið í að verða arðbær viðbót við hefðbundna vinnslu sjávarafla, atvinnugrein sem þjónustar snyrtivöruiðnaðinn, lyfjaiðnaðinn og landbúnaðinn. Nýtingin er orðin vænleg aðferð til að skapa tekjur úr hlutum fisksins sem áður var kastað á glæ. Í þessum geira felast nú margháttuð fjárhagsleg tækifæri.
Útdrættir erinda ættu ekki að vera lengri en 200 orð og þeir umsækjendur sem styðjast við eigin reynslu af nýtingu fiskúrgangs og/eða eigin rannsóknir á þessu sviði njóta forgangs. Vinsamlegast sendið útdráttinn, ásamt æviágripi ræðumanns, andlitsmynd og lógó, á netfangið jgwynn@mercatormedia.com í seinasta lagi 31. maí.