Fyrsti dagur Icefish tókst frábærlega – fjölmörg tækifæri framundan

Lykilfólk í íslenskum sjávarútvegi lét sig ekki vanta á Íslensku sjávarútvegssýninguna sem hófst í dag, enda fyrsta skipti í langan tíma sem hægt hefur verið að hittast augliti til auglitis um langa hríð. Þetta er þrettánda sýningin frá upphafi.

IMG_2329

Guðbjartur Þórarinsson, framkvæmdastjóri Ísfell, er hæstánægður með sýninguna og geri miklar væntingar til góðs árangurs af henni. Ísfell hefur sýnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni frá því að fyrirtækið var stofnað fyrir 30 árum.

Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins, heimsótti sýningarbás Ísfells fyrr í dag og í kjölfarið var rætt við Guðbjart um væntingar hans til Icefish, stöðuna í greininni, nýjungar sem Ísfell sýnir og hvers vænta má á næstunn.

All news
22-24 September

Join the conversation at the conference

Book your place