Sjávarútvegssýning ársins 2017 er sú tólfta í röðinni en á sýningunni
árið 2014 var til staðar áberandi bjartsýni og margir sýnendur tryggðu sér
umfangsmiklar pantanir. Þátttakendum fjölgaði um 12% miðað við sýninguna 2011
og urðu alls 15.219, auk þess sem þeir komu frá alls 52 löndum, fleiri en
nokkru sinni fyrr. Í þeim hópi voru í fyrsta sinn sýnendur frá Kína,
Þýskalandi, Japan, Tyrklandi og Bandaríkjunum. Á sjötta hundrað fyrirtækja
kynntu vörur sínar og þjónustu, allt frá fjölbreyttu úrvali veiði- og
vinnslubúnaðar til umsjónar með úrgangi og nýtingarmöguleika hans.
Íslenska sjávarútvegssýningin eða Icefish fjallar um allar
hliðar sjávarútvegsins, allt frá veiðum og fiskileit til vinnslu og pökkunar,
markaðsetningar og dreifingar á fullunnum afurðum.
Starfslið Íslensku sjávarútvegssýningarinnar veitir umfangsmikinn
stuðning til kynningar á rúmlega 500 sýnendum og kostendum sínum. Þar er með
talin bein markaðssetning með póstsendingum á alls 6.700 netföng atvinnumanna
og fyrirtækja í sjávarútvegi auk umfjöllunar í rúmlega 40 fjölmiðlum af öllu
tagi, jafnt íslenskum sem erlendum, í sjónvarpi og útvarpi, net- og
prentauglýsingum og í systurútgáfu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar,
tímaritinu World Fishing & Aquaculture.
Þau fyrirtæki og sýnendur á fyrri sjávarútvegssýningum sem enn eiga
eftir að bóka sýningarbás á Icefish 2017 ættu að hafa samband við Marianne
Rasmussen-Coulling, annað hvort í tölvuskeyti eða um síma: icefish@icefish.is | +44 1329 825335