Síldarvinnslan endurnýjar fiskiskipaflota sinn til botnveiða

Um er að ræða skipin Barða og Gullver, sem Síldarvinnslan gerir sjálf út, og Vestmannaey og Bergey sem dótturfyrirtækið Bergur-Huginn gerir út.

Barði var smíðaður árið 1989, Gullver er enn eldra skip frá árinu 1983 en Vestmannaey og Bergey voru smíðuð fyrir Berg-Hugin árið 2007.

Við höfum þegar hafið undirbúning að því
að fá ný skip til botnveiða, segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Gunnþór B.
Ingvason.

Bjartur var seldur til Íran í fyrra og nú er verið að semja um sölu
á Barða til Rússlands í tengslum við
endurnýjunina. Blængur, sem áður hét Freri, hefur verið mikið endurnýjaður sem fjölhæft
verksmiðjuskip og var tekinn í notkun fyrr á þessu ári,” sagði hann.

„Salan á Barða þýðir að eyða myndast áður en nýtt skip kemur svo við
bjóðum áhöfninni pláss á öðrum skipum eða störf í landi. Það er stór ákvörðun
að hefjast handa um endurnýjun og stefnan til framtíðar er skýr, við ætlum
okkur að vera í fremstu röð hvað rekstur, veiðar og starfsskilyrði áhafnar
áhrærir. Þetta er metnaðarfull áætlun sem felur í sér stór skref til framtíðar
litið,” sagði Gunnþór að lokum.

All news
22-24 September

Join the conversation at the conference

Book your place